Til baka á starfasíðu

Rimaskóli leitar að kennara á yngsta stig frá ágúst 2026

Rimaskóli leitar að kennara á yngsta stig. Um er að ræða 80-100% starf og tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2026-31. júlí 2027.

Einkunnarorð Rimaskóla eru regla, metnaður og sköpun. Skák er höfð í hávegum en auk þess eru leiðarljósin okkar leiðsagnarnám, Heillaspor og uppeldi til ábyrgðar. Unnið er með PALS og teymisvinnu.

Fullt starf Rimaskóli 112
Virkja

Nemendum á yngsta stigi leita að hressum og skapandi umsjónarkennara. 

Verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu endurskoðaðrar aðalnámskrár

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Menntun og hæfni til kennslu yngri barna
  • Þekking á PALS lestraraðferð
  • Góð samskiptafærni og reynsla að teymisvinnu
  • Þekking á upplýsingatækni
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Íslenskukunnátta C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða í netfanginu thoranna.rosa.olafsdottir@reykjavik.is.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Virkja