Til baka á starfasíðu

Spennandi sumarstarf stuðningsráðgjafa

Háskólamenntaður stuðningsráðgjafi óskast í 90% stöðu á íbúðakjarna í Fossvogi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. 

Fullt starf Íbúðakjarni Bleikargróf 4 108
Sækja um

Við auglýsum eftir ábyrgum, metnaðarfullum og umhyggjusömum stuðningsráðgjafa með háskólamenntun á íbúðakjarna í Fossvogi. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. 

Stuðningsráðgjafi vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra

Sólarhringsþjónusta er veitt á heimilinu. Stuðningsráðgjafi vinnur á dag- kvöld- og helgarvöktum.

Spennandi tækifæri fyrir kraftmikla og áhugasama einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun starfseminnar.  

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagatengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
  • Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðarins.
  • Framfylgir og aðstoðar starfsfólk við að framfylgja einstaklingsáætlunum í samráði við stjórnendur.
  • Tekur þátt og stýrir teymisvinnu og þróunarstarfi.
  • Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
  • Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, annað starfsfólk og aðstandendur.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.

Hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði heilbirgðis, mennta- og/eða félagsvísinda.
  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum.
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum.
  • Metnaður, skipulagshæfni, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags. Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu.

Starfshlutfall

90%

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Karitas Kjartansdóttir

karitask@reykjavik.is

Sækja um