Til baka á starfasíðu

Íþróttakennari

Íþróttakennari óskast til starfa í Háteigsskóla. 

Fullt starf Háteigsskóli 105
Sækja um

Háteigsskóli óskar eftir að ráða íþróttakennara. Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni, félagsfærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Unnið er með leiðsagnarnám á öllum stigum í skólanum. Skólastarfið byggir á teymiskennslu og skapandi kennsluháttum þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi. Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.

Staðan er laus nú þegar og er afleysing út skólaárið með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun áskilin.
  • Hæfnipróf vegna sundkennslu áskilið.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Teymishugsun

Frekari upplýsingar um starfið. 

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Norberg Sigfúsdóttir í síma 411 6870 eða í tölvupósti gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is

Sækja um