Umsjónarkennari skólaárið 2026 - 2027
Hólabrekkuskóli óskar eftir umsjónarkennara frá næsta hausti, 1. ágúst 2026. Áhersla er lögð á leiðsagnarnám, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Sérstök áhersla er lögð á Pals lestrarkennslu og innleiðingarferli er í gangi með Starra orðaforðakennsluaðferð.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi, kennslu Pals og Starra orðaforðakennslu.
Ef þú ert framsækinn umsjónarkennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Leiðsagnarnám, teymiskennsla og notkun kennsluaðferða sem skila árangri.
· Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og foreldra.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
· Vinna að jákvæðum skólabrag ásamt starfsfólki skólans.
· Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Hæfniskröfur
· Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
· Framúrskarandi lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
· Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
· Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
· Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
· Stundvísi og samviskusemi.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari auk annarra gagna er málið varðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla, lovisa.gudrun.olafsdottir@rvkskolar.isí síma 411 7550
Hólabrekkuskóli,
Suðurhólum 10
111 Reykjavík
Ótímabundin ráðning
Starfshlutfall 100%