Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli óskar eftir kennara í stoðþjónustu. Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á leiðsagnarnám, lestur til árangurs, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi.
Ef þú ert framsækinn kennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Teymiskennsla - áhersla á fagleg vinnubrögð og samvinnu.
- PALS lestrarþjálfun og Starra orðaforðakennsla.
- Samstarf við starfsfólk, sérfræðinga og foreldra.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Hæfniskröfur
- Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
- Framúrskarandi lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
- Stundvísi og samviskusemi.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari auk annarra gagna er málið varðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla, lovisa.gudrun.olafsdottir@rvkskolar.is
Hólabrekkuskóli,
Suðurhólum 10
111 Reykjavík
Ótímabundin ráðning
Starfshlutfall 100%