Umsjónarkennari á miðstigi í Laugarnesskóla skólaárið 2026-2027
Laugarnesskóli auglýsir lausa stöðu umsjónarkennara á miðstigi skólaárið 2026-2027.
Laugarnesskóli auglýsir lausa stöðu umsjónarkennara á miðstigi skólaárið 2026-2027.
Laugarnesskóli stendur við Kirkjuteig 24 í Reykjavík og er einsetinn grunnskóli fyrir nemendur í 1.- 6. bekk. Einkunnarorð skólans eru lífsgleði, nám, samvinna, kærleikur og ósk. Í Laugarnesskóla er allt starfsfólk samstíga og vinnur saman að stefnumörkun og forgangsröðun. Skólastarfið á að vera uppbyggjandi þar sem metnaður ríkir og virðing er borin fyrir hverjum og einum. Kennsluhættir í Laugarnesskóla einkennast af fjölbreytni þar sem skólinn reynir að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga nemenda. Skólaumhverfi skólans á að vera hlýlegt og aðlaðandi fyrir alla þá sem tengjast skólanum.
Laugarnesskóli mun fllytja starfsemi sína í bráðabirgðahúsnæði í svokölluðu Skólaþorpi við Reykjaveg á skólaárinu.
Um er að ræða tímabundna ráðningur í starf umsjónarkennara skólaárið 2026-2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Að vinna við námsmat í Mentor, nemendaskrár og aðrar nauðsynlegar skýrslur.
- Að annast upplýsingagjöf og samskipti við forsjáraðila nemenda.
- Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi er skilyrði.
- Framúrskarandi tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Góð tölvukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl nk. og eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin. Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Gunnlaugsson skólastjóri gegnum netfangið bjorn.gunnlaugsson@reykjavik.is