Sérkennsla/stuðningur
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa í leikskólanum Drafnarsteini.
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa í leikskólanum Drafnarsteini.
Drafnarsteinn er sex deilda leikskóli á tveimur starfsstöðum vestast í Vesturbæ Reykjavíkur sem eru Drafnarborg á Drafnarstíg 4 og Dvergasteinn sem er við Seljaveg 12. Í leikskólanum er unnið eftir hugmyndafræðinni Ótrúleg eru ævintýrin og því mikil áhersla á málörvun og læsi almennt. Drafnarsteinn er einnig Grænfánaskóli.
Starfið er laust nú þegar, eða eftir samkomulagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning bæði í hóp inni á deild og í sérkennslu.
Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum. Næsti yfirmaður er sérkennslustjóri. Unnið er í teymi sérkennslu og stuðnings.
Hæfniskröfur
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi nauðsynleg.
Reynsla af sérkennsu
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Mjög góð íslenskukunnátta.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri 411-3630