Stuðningsfulltrúi í Virknimiðstöð Reykjavíkur - starf sem skiptir máli
Virknimiðstöð Reykjavíkur auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í fullt starf. Starfið felur í sér að veita fötluðu fólki stuðning í daglegri virkni og taka þátt í að skapa umhverfi sem byggir á virðingu, sjálfstæði og valdeflingu.
Virknimiðstöð Reykjavíkur óskar eftir stuðningsfulltrúa í full starf. Í starfinu tekur þú þátt í daglegu starfi Virknimiðstöðvar fyrir fatlað fólk þar sem áhersla er lögð á virkni, valdeflingu, virðingu og sjálfstæði. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í skapandi umhverfi, er nærgætinn og hefur ánægju af því að styðja fólk til aukins sjálfstæðis og bættra lífsgæða.
Um starfsemina Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi ásamt smíðastofu, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, með þjónandi leiðsögn í skapandi og valdeflandi umhverfi.
Um starfið
- Hvetja og styðja einstaklinga í daglegri virkni og starfi.
- Veita umönnun og skilja fjölbreytt tjáningaform.
- Framfylgja einstaklingsáætlunum með jákvæðu viðmóti og nærgætni.
- Vera leiðbeinandi og góð fyrirmynd í daglegu starfi.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af vinnu með fötluðu fólki eða í sambærilegu starfi er kostur.
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
- Hreint sakavottorð samkvæmt lögum og reglum Reykjavíkurborgar.
- Ökuréttindi eru æskileg.
- Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Starfið er staðsett að Skeifunni 8, á annarri hæð.
Vinnutími: kl. 8:30–15:45, 36 stunda vinnuvika.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hanna Kristín Sigurðardóttir. Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið hanna.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is