Til baka á starfasíðu

Samfélagshúsið í Bólstaðarhlíð 43 óskar eftir starfsmanni í sumarafleysingu

Samfélagshúsið í Bólstaðarhlíð 43 óskar eftir starfsmanni í sumarafleysingu sem hefur áhuga á félagsstarfi. 

Fullt starf Samfélagshús Bólstaðarhlíð 105
Sækja um

Samfélagshúsið í Bólstaðarhlíð 43 óskar eftir að ráða starfsmann í sumar við að aðstoða í félagsstarfinu og eldhúsi, ásamt léttum þrifum.

Í Bólstaðarhlíð 43 fer fram fjölbreytt félagsstarf og viðburðir fyrir fólk á öllum aldri þar sem markmiðið er að efla og virkja fólk til félagslegrar þátttöku. Reynt er að hafa dagskrá hússins og starfsemi þannig að hún höfði til eldri borgara en einnig að hún höfði til fólks óháð aldri, kyni og uppruna.

Vinnutími er áætlaður frá 08:00 – 16:00 alla virka daga í átta vikur á tímabilinu júní – ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfar í teymi samfélagshússins
  • Skipuleggur og heldur úti dagskrá samfélagshússins
  • Skipuleggur viðburði
  • Hvetur fólk til félagslegrar virkni
  • Tilfallandi aðstoð í eldhúsi kringum hádegismat og á opnun kaffihúsins
  • Önnur verkefni sem yfirmenn kunna að fela viðkomandi

Hæfniskröfur

  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta B2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Þorsteinsdóttir verkefnastjóri í tölvupósti ragnhildur.thorsteinsdottir@reykjavik.is.

Sækja um