Til baka á starfasíðu

Skemmtilegasta helgarstarf í heimi - sumarafleysing

Íbúðarkjarninn Hagaseli 23 óskar eftir frábæru fólki í afleysingar í sumar. Um er að ræða 30% helgarstarf þar sem unnið er aðra hvora helgi dag og kvöldvaktir. 

Hlutastarf Íbúðakjarni Hagaseli 109
Sækja um

Við í Hagaseli leitum að fólki í ótrúlega skemmtilegt og fjölbreytt helgarstarf í sumar með möguleika um áframhaldandi ráðningu í haust. Fullkomið starf fyrir fólk sem elskar að hafa gaman og vinna með frábæru fólki. 

Helstu verkefni og ábyrgð starfsmanna:

  • Stuðningur og aðstoð við íbúa.
  • Stuðningur og aðstoð við heimilishald.
  • Stuðningur og aðstoð við samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
  • Framfylgir einstaklingaáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Áhersla er lögð á einstaklingsbundinn stuðning þar sem þjónusta er aðlöguð að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.

Hæfnuskröfur:

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Íslenskukunnátta B1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).

Frekari upplýsingar um starfið

Upphafsdagur fer eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurbogar og Sameykis.

Nánari upplýsingar hjá Álfheiði Hafsteinsdóttur í síma 664-0003 eða í gegnum tölvupóst, alfheidur.hafsteinsdottir@reykjavik.is

Sækja um