Félagsráðgjafi/Ráðgjafi - sérþekking tengd fötlun
Laust er til umsóknar starf Félagsráðgjafa/ráðgjafa í Barna –og fjölskyldudeild á Norðurmiðstöð. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi með áhuga, þekkingu og reynslu tengt ráðgjöf við fötluðu börn og fjölskyldur þeirra.
Norðurmiðstöð óskar eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og fjölskyldur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Verkefni Félagsráðgjafa/ráðgjafa taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu, Félagsráðgjafi/ráðgjafi er hluti af þverfaglegu teymi sem sinnir ráðgjöf og stuðningi við fötluð börn og fjölskyldur þeirra í deild barna-og fjölskyldumála. Leitast er eftir að ráða einstakling með mikla þekkingu á einhverfu og stuðningsþörfum barna sem eru einhverf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Verkefni Félagsráðgjafa/ráðgjafa taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu, Félagsráðgjafi/ráðgjafi er hluti af þverfaglegu teymi sem sinnir ráðgjöf og stuðningi við fötluð börn og fjölskyldur þeirra í deild barna-og fjölskyldumála. Leitast er eftir að ráða einstakling með mikla þekkingu á einhverfu og stuðningsþörfum barna sem eru einhverf.
• Félagsráðgjafi/ráðgjafi veitir fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra ráðgjöf s.s. vegna fötlunar, félagslegra aðstæðna, uppeldi barna, fjölmenningar og annað sem fjölskyldan kann að þurfa stuðning með.
• Félagsráðgjafi/ráðgjafi sérhæfir sig í og hefur yfirsýn yfir úrræði og stuðning fyrir einhverf börn með umfangmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldur þeirra.
• Félagsráðgjafi/ráðgjafi veitir einstaklingsmiðaðan stuðning sem miðar að því að tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu eftir því sem við á og þörf krefur.
• Veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns. Ber ábyrgð á málstjórn í stuðningsteymum samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
• Vinnur mat á þjónustuþörfum barns og fjölskyldu þess. Gerir stuðningsáætlun og leggur mat á árangur.
• Samstarf og samvinna við lykilstofnanir og hagsmunasamtök í málefnum barna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði félags-, mennta- og/eða heilbrigðisvísinda s.s. Þroskaþjálfi, fötlunarfræði, sálfræði, starfsréttindi til að starfa sem félagsráðgjafi.
• Þekking og reynsla af ráðgjöf við fjölskyldur fatlaðra barna.
• Þekking og reynsla í starfi með fötluðum börnum.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Áhugi og reynsla á þverfaglegri teymisvinnu.
• Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matsramma
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar
• Þekking og reynsla af starfi á sviði velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar eða öðru sveitarfélagi er kostur. Þekking eða reynsla af því að starfa með fólki af erlendum uppruna er kostur.
Norðurmiðstöð býður upp á:
· 36 stunda vinnuviku
· Fjölskylduvænan vinnustað.
· Sund -og menningarkort Reykjavíkurborgar
Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Alda Róbertsdóttir deildarstjóri barna- og fjölskyldna; Alda.Robertsdottir@reykjavik.is