Til baka á starfasíðu

Starfsfólk óskast í skaðaminnkandi úrræði fyrir konur

Vesturmiðstöð leitar að hressu og jákvæðu starfsfólki í búsetukjarna fyrir konur með miklar og flóknar þjónustuþarfir.

Um er að ræða morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir. 

Fullt starf Reykjavíkurborg
Sækja um

Vesturmiðstöð leitar að starfsfólki í skaðaminnkandi búsetukjarna fyrir konur með miklar og flóknar þjónustuþarfir.

Um er að ræða morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir. 

Markmið með þjónustunni er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt. Íbúum er veitt ráðgjöf og sértækur stuðningur í búsetunni. 

Þjónustan er veitt með það að markmiði að efla vald íbúa yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd, sjálfstraust, sjálfsvirðingu, félagslega stöðu og lífsgæði. Þjónustan tekur mið af skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði.

Mikilvægt er að starfsmaður treysti sér í að sinna verkefnum við krefjandi aðstæður, og geti unnið næturvaktir. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Félagslegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi
  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar
  • Aðstoðar íbúa við tiltekt og þrif
  • Umönnun íbúa, aðstoð við daglegar þarfir og þrif þegar þörf er á 
  • Almenn heimilisþrif

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun
  • Reynsla af vinnu með fólki í vímuefnavanda er kostur
  • Umburðalyndi og virðing fyrir fólki með flóknar og miklar þjónustuþarfir
  • Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni
  • Íslenskukunnátta B2 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynhildur Jensdóttir í tölvupósti: brynhildur.jensdottir@reykjavik.is.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynhildur Jensdóttir í tölvupósti brynhildur.jensdottir@reykjavik.is.

Sækja um