Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa við leikskólann Seljaborg. Ekki er um að ræða Sumarstarf.

Fullt starf Leikskólinn Seljaborg 109
Sækja um

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa við leikskólann Seljaborg, Tunguseli 2, 109 Reykjavík. Ekki er um að ræða Sumarstarf.

Seljaborg er þriggja deilda leikskóli og þar dvelja 48 börn.

Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágreninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf.<br>Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni í Seljaborg. Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi. Í Seljaborg er vinnuvikan 36 stundir..

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara æskilegt.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta á stígi B2samkvæmt samevrópska matskvarðanum

Fríðindi í starfi

  • Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
  • Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
  • Samgöngusamningur
  • Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
  • 36 stunda vinnuvika
  • Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Karen Eyjólfsdóttir leikskólastjóri

hulda.karen.eyjolfsdottir@reykjavik.is

Sækja um