Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari eða leiðbeinandi. (Copied)

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt áherslum leikskólans undir stjórn deildarstjóra.

Fullt starf Leikskólinn Laugasól 105
Sækja um

Leikskólakennara/leiðbeinanda vantar í leikskólann Laugasól í 100% starf frá 15.apríl - 31.ágúst. Starfið er tímabundið en möguleikar á framlengingu í haust. 

Laugasól er réttindaskóli Unicef og Regnbogavottaður skóli. Allt okkar starf er því skipulagt út frá vinnu með Barnasáttmálanum, virðingu fyrir fjölbreyttu samfélagi og mannréttindum allra. 

Megináherslur í menntun og uppeldisstarfi leikskólans er frjáls leikur, skapandi starf og lýðræði.

Við notum að mestu opinn efnivið sem er þroskandi og fjölbreytilegur. Unnið er með verðlaust efni og einnig er notað ýmislegt sem finnst í náttúrunni.

Í skapandi skólastarfi fá börnin tækifæri til að kanna og vinna með fjölbreytt leikefni og aðferðir. Áherslan er á sköpunarferlið sjálft og námið sem á sér stað þegar hugmyndir, tilfinningar og ímyndunaraflið fær að njóta sín. Hvatt er til skapandi hugsunar og sjálfstæðra vinnubragða. 

Laugasól er lærdómssamfélag þar sem metnaður, áhugi og samtal eiga sér stað og hver lærir af öðrum til að bæta árangur í starfi.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði. 

Fríðindi í starfi

  • · Sundkort
  • · Menningarkort
  • · Samgöngusamningur
  • · 36 stunda vinnuvika
  • · Heilsustyrkur
Sækja um