Til baka á starfasíðu

Umsjón með stafrænni tækni í Hólabrekkuskóla

Hólabrekkuskóli óskar eftir sérfræðingi í stafrænni tækni í námi og kennslu frá næsta hausti, 1. ágúst 2026. Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 80 starfsmenn. 

Fullt starf Hólabrekkuskóli - Almennt 111
Sækja um

Hólabrekkuskóli óskar eftir sérfræðingi í stafrænni tækni í námi og kennslu frá næsta hausti, 1. ágúst 2026. Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 80 starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með stafrænu námi og skapandi tækni.
  • Umsjón með tækjum og tólum og skipuleggur útlán.
  • Kennir skapandi tækni innan skólans.
  • Aðstoðar starfsfólk skólans í tæknimálum. 
  • Heldur námskeið fyrir starfsfólk.
  • Er tengiliður við sérfræðinga innan og utan skólans.
  • Vinnur afmörkuð verkefni innan skólans.

Hæfniskröfur

  • Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
  • Framúrskarandi lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
  • Stundvísi og samviskusemi.

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari auk annarra gagna er málið varðar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla, lovisa.gudrun.olafsdottir@rvkskolar.isí síma 411 7550

Hólabrekkuskóli,

Suðurhólum 10

111 Reykjavík

Ótímabundin ráðning

Starfshlutfall 100%

Sækja um