Deildarstjóri skólaárið 2026 - 2027
Húsaskóli óskar eftir deildarstjóra 3 í 100 % starf til að stýra sex barna einingu innan skólans fyrir börn í 2. bekk með þroskahömlun og skyldar fatlanir.
Þessi eining er hluti af almennu skólastarfi en með mjög góða aðstöðu og mun veita fötluðum þjálfun og kennslu í samræmi við stuðningsþarfir.
Hér er frábært tækifæri til að taka þátt í verkefni sem miðar að inngildingu með því að byggja brú milli fatlaðra og ófatlaðra. Viðkomandi mun njóta ráðgjafar sérskóla og skólaþjónustu við þjálfun og kennslu með sértækum hætti í almennu umhverfi skóla.
Húsaskóli í Grafarvogi er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Nemendur eru um 150 og starfsmenn um 30. Skólinn er teymiskennsluskóli og er er með hæfnimiðað verkefnanám þar sem flestar greinar eru samþættar. Hann hefur tileinkað sér aðferðir leiðsagnarnáms og Byrjendalæsis og áhersla er lögð á fjölbreytta og skapandi kennsluhætti, læsi, umhverfismennt og heilsueflingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Halda utan um og stýra kennslu og stuðningi við nemendur í sérúrræði í samráði við skólastjórnendur og viðkomandi teymi.
- Þróa í samvinnu við samstarfsmenn famsækið og faglegt skólastarf með áherslu á fjölbreytta kennsluhætti.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Hæfniskröfur
- Fagaðili með uppeldismenntun, s.s. kennari, þroskaþjálfi, sálfræðingur, félasráðgjafi, atferlisfræðingur o.fl.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara eða annars stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Cýrusdóttir skólastjóri í síma 4116868 og í tölvupósti katrin.cyrusdottir@reykjavik.is