Umsjónarmaður fasteignar
Grandaskóli auglýsir eftir umsjónarmanni fasteigna í 100% stöðu.
Leitað er að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á umsjón fasteigna. Umsjónarmaður fasteignar sér um og hefur umsjón með skólahúsnæði og skólalóð Grandaskóla og tekur þannig þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans.
Grandaskóli auglýsir eftir umsjónarmanni fasteigna í 100% stöðu. Leitað er að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á umsjón fasteigna. Umsjónarmaður fasteignar sér um og hefur umsjón með skólahúsnæði og skólalóð Grandaskóla og tekur þannig þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans. Starf umsjónarmanns felst meðal annars í aðstoð við nemendur skólans og starfsfólk og þátttöku og aðstoð í mötuneyti auk umsjónar með skólahúsnæðinu. Hann starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Grandaskóli er staðsettur í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 330 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 55 starfsmenn.
Einkunnarorð skólans eru jákvæðni, ábyrgð, vellíðan, árangur. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð.
Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
Leitað er að einstaklingi sem hefur reynslu af verkstjórn og umsjón fasteigna en hefur jafnframt óbilandi trú á börnum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn til að taka þátt í að móta metnaðarfullt skólastarf. Umsókn fylgi ferilskrá, viðeigandi vottorð um menntun og annað er málið varðar. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sér um að húsnæðið sé opið við upphaf skóladags og ber ábyrgð á frágangi húsnæðis við lok skóladags.
- Sér um að húsnæði skólans og allur búnaður, ásamt skólalóð, séu ávallt í fullnægjandi ástandi og sinnir útköllum eftir þörfum.
- Er næsti yfirmaður skólaliða, skipuleggur og ber ábyrgð á störfum þeirra.
- Hefur umsjón með ræstingu skólahúsnæðis sér um skipulagningu hennar og verkstýrir þeim sem sjá um þau, ásamt innkaupum á ræstivörum.
- Sinnir almennu viðhaldi skólahúsnæðis og lóðar og kallar iðnaðarmenn til verka samkvæmt beiðnakerfi borgarinnar.
- Sér um minniháttar viðhald og lagfæringum.
- Sinnir beiðnum frá starfsfólki skólans um viðvik er lúta að búnaði og kennsluaðstöðu.
- Fer með umsjón öryggismála skólans, situr í öryggisnefnd og kemur að skipulagi neyðaráætlana.
- Hefur umsjón með lyklamálum til starfsmanna skólans og annarra sem þurfa þykir.
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri og aðrir stjórnendur fela honum.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Iðnmenntun æskileg.
- Þekking á verklegum framkvæmdum og áætlanagerð.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Góð skipulagshæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæði, frumkvæði og drifkraftur í starfi.
- Snyrtileg, skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Tölvukunnátta sem nýtist í starfi.
- Þjónustulund.
- Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg. B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið.
Hlunnindi í starfi
- Menningar- og sundkort.
- Samgöngustyrkur.
- Heilsuræktarstyrkur.
Frekari upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sameykis og Reykjavíkurborgar.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Nánari upplýsingar um starfi veitir Katrín Ásta Hafsteinsdóttir, skólastjóri (katrin.asta.hafsteinsdottir@reykjavik.is) eða í síma 411 7120