Til baka á starfasíðu

Forstöðumaður á nýlegan íbúðakjarna í miðbænum

Skrifstofa málefna fatlaðs fólks á velferðarsviði óskar eftir forstöðumanni í spennandi starf á íbúðakjarna í miðbæ Reykjavíkur. 

Fullt starf Íbúðakjarni Laugavegi 105 105
Sækja um

Skrifstofa málefna fatlaðs fólks á velferðarsviði leitar að framsýnum og metnaðarfullum forstöðumanni á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk, að Laugavegi 105 Reykjavík. Markmið þjónustunnar er að veita íbúum stuðning til að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi, innan sem utan heimilis. Forstöðumaður er leiðandi við framkvæmd þjónustunnar og veitir henni faglega forystu. 

Starfsemin byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Áhersla er á valdeflandi stuðning. 

Veitt er sólarhringsþjónusta á staðnum. 

Forstöðumaður bera ábyrgð á að halda utan um sérfræðiþjónustu, að skipuleggja starfsemina með þeim hætti að hún nái stefnumarkmiðum Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks og að leiða faglegt starf í samráði við hvern og einn einstakling.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg stjórn og skipulag á starfsemi
  • Stjórnun mannauðs
  • Þátttaka í þróun og nýbreytni í þjónustu 
  • Samstarf við notendur, aðstandendur og hagsmunasamtök fatlaðs fólks 
  • Tryggja að framkvæmd þjónustu sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda. Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki 
  • Þekking og reynsla af sambærilegum störfum
  • Þekking og reynsla af vinnu með hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstæðs lífs 
  • Leiðtogafærni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta B2 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Steiney Guðnadóttir deildarstjóri í tölvupósti margret.steiney.gudnadottir@reykjavik.is

Sækja um