Deildarstjóri á unglingastigi - Foldaskóli
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra á unglingastigi í Foldaskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á leiðsagnarnámi og þróun skólastarfs.
Foldaskóli er heildstæður grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru tæplega 500 en ásamt því að vera hverfisskóli nemenda í 1.-10. bekk í Foldahverfi er hann safnskóli á unglingastigi fyrir Hamra- og Húsahverfi. Við skólann er starfrækt Foldaver, sérdeild fyrir einhverfa.
Leiðsagnarnám og skapandi lærdómssamfélag einkenna skólann ásamt sterkri umhverfisvitund og heilsueflingu en skólinn tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og fylgir grænum skrefum Reykjavíkurborgar. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann er í nálægt við Grafarvoginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi.
Einkunnarorð skólans eru: siðprýði – menntun – sálarheill
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast deildarstjórn á unglingastigi.
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
- Starfar í stjórnendateymi skólans.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans og stuðlar að framþróun og nýbreytni í kennsluháttum og kennsluaðsferðum s.s. leiðsagnarnámi og námsmati.
Hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Stjórnunarreynsla í grunnskóla æskileg.
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni, leiðsagnarnámi og notkun rafrænna miðla í skólastarfi.
- Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.
Starfshlutfall 100%
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía María Gunnarsdóttir í tölvupósti Olafia.maria.gunnarsdottir@reykjavik.is