Skammtímadvöl í Árlandi 9 óskar eftir teymistjóra
Skammtímadvöl í Árlandi 9 óskar eftir að ráða metnaðarfullann teymisstjóra í stjórnendateymi staðarins.
Árland 9, innan Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, óskar eftir að ráða metnaðarfullann teymisstjóra á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.
Í Árlandi 9 er veitt sólarhringsþjónusta þar sem fjögur ungmenni dvelja hjá okkur aðra hverja viku. Unnið er eftir tengslamyndandi aðferðafræði þar sem allir fá að njóta sín í umhverfi sem einkennist af hlýju og virðingu.
Unnið er á blönduðum vöktum; dag, kvöld-, og helgarvöktum, eina helgi í mánuði. Um er að ræða 80- 100% starf sem skiptist jafnt í fagvinnu og vaktir þar sem teymisstjóri ber faglega ábyrgð á starfinu. Teymisstjórar eru hluti af stjórnendateymi staðarins og leiða starfsemina ásamt forstöðumanni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýrir teymi í kringum einstaklinga og hefur umsjón með framkvæmd og skipulagi á þjónustu við einstaklinga þar með talið daglegum störfum og forgangsröðun verkefna starfsmanna í samráði við forstöðumann.
- Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir einstaklinga í teyminu og ber ábyrgð á að starfsemin mæti þjónustuþörfum einstaklinga.
- Gerir einstaklingsáætlanir í samvinnu við þjónustunotendur, starfsfólk og forstöðumann.
- Er leiðandi þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðar.
- Sinnir fræðslu og leiðbeinir starfsfólki, samræmir vinnubrögð og þróar verkferla í samráði við forstöðumann.
- Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda.
- Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum.
- Reynsla af stjórnun æskileg.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Afburðarhæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta, tungumálaviðmið B1.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Ósk Jóhannesdóttir, forstöðumaður, rakel.osk.johannesdottir@reykjavik.is