Húsaskóli - Myndmenntakennari, skólaárið 2026 - 2027
Húsaskóli óskar eftir að ráða myndmenntakennara frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða 60% starf, möguleiki á 100% starfi.
Húsaskóli í Grafarvogi er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Nemendur eru um 150 og starfsmenn um 30. Skólinn er teymiskennsluskóli og er er með hæfnimiðað verkefnanám þar sem flestar greinar eru samþættar. Hann hefur tileinkað sér aðferðir leiðsagnarnáms og Byrjendalæsis og áhersla er lögð á fjölbreytta og skapandi kennsluhætti, læsi, umhverfismennt og heilsueflingu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í skólaþróun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat í samráði við skólastjórnendur og viðkomandi teymi.
- Þróa í samvinnu við samstarfsmenn famsækið og faglegt skólastarf með áherslu á fjölbreytta kennsluhætti.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Starfar samkvæmt stefnu skólans.
Hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður.
- Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði, faglegur metnaður og góð samskiptahæfni.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Hlunnindi í starfi
- Menningarkort og bókasafnskort.
- Samgöngustyrkur.
- Sundkort.
- Heilsuræktarstyrktur.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Cýrusdóttir skólastjóri í síma 4116868 og í tölvupósti katrin.cyrusdottir@reykjavik.is