Stuðningfulltrúi í íbúðakjarna í Norðlingaholti
Laus er staða stuðningsfulltrúa á íbúðarkjarna í Norðlingaholti. Staðan er 70-90 % og er um blandaðar vaktir að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Í íbúðakjarnanum Kambavaði er öll aðstaða er til fyrirmyndar og framúrskarandi starfsmannahópur sem leggur áherslu í veita góða einstaklingsbundna þjónustu í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.
Á heimilinu búa sex einstaklingar í einstaklingsíbúðum. Um vaktavinnu er að ræða (morgun-, kvöld- og helgarvaktir). Starfshlutfall er milli 70-90%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
- Hvetur og styður íbúa í daglegu lífi.
- Stuðlar að góðum samskiptum við aðstandendur íbúa.
- Aðstoð við almenn störf á heimili íbúa, svo sem við þrif og matseld.
- Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn með það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga.
Hæfniskröfur:
- Góð almenn menntun
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)https://www.coe.int/en/web/common-european-framework-reference-languages/table-2-cefr-3.3-common-reference-levels-self-assessment-grid
- Framtakssemi, áreiðanleiki, heiðarleiki og jákvæðni í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
- Bílpróf er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
Fríðindi í starfi:
- Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
- Heilsuræktarstyrkur
- Frítt í sund með ÍTR kortinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Erla Margrét Sveinsdóttir
Kambavad@reykjavik.is
411-1290.