Hey! Laust starf í skemmtilegum íbúðakjarna
Íbúðakjarninn Rangársel óskar eftir starfsfólki í stöðu stuðningsfulltrúa í fjölbreytt starf með skemmtilegu fólki.
Íbúðakjarninn Rangársel 16-20 óskar eftir starfsfólki í skemmtilegt og krefjandi starf með fólki með þroskaskerðingu og skildar raskanir. Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa.
Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og fá allir aðlögunartíma. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og Bjargráðakerfinu Björg.
Íbúakjarninn Rangársel 16-20 er sólahringsheimili og um er að ræða vaktavinnu dag-, kvöld- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Að sinna umönnun og vera vakandi fyrir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Gilt ökuskírteini.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameyki.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elva Ösp Ólafsdóttir forstöðumaður í tölvupóst elva.osp.olafsdottir@reykjavik.is