Til baka á starfasíðu

Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun

Norðurmiðstöð leitar að hjúkrunarfræðingum til að ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. Starfshlutfall er samkomulag

Óskilgreint hlutfall Heimahjúkrun - Norðurmiðstöð 103
Sækja um
  • Ert þú atorkumikill hjúkrunarfræðingur í leit að nýjum og ferskum áskorunum?
  • Viltu sinna fjölbreyttum hópi fólks víðsvegar um borgina, þar sem verkefnin spanna allt litróf hjúkrunar?
  • Viltu fá tækifæri til að veita sérhæfða hjúkrunarþjónustu til fólks í borginni og kynnast þeirri fjölbreytni sem starfið býður upp á?
  • Viltu upplifa töfra þess að hjúkra fólki í þeirra eigin umhverfi?
  • Viltu kynnast því hvernig er að starfa við hjúkrun í samþættri heimaþjónustu?
  • Viltu taka þátt í að þróa og innleiða nýjar leiðir til að veita heilbrigðisþjónustu í umhverfi sem tekur sífelldum breytingum?

Ef svarið er JÁ – þá ert þú tilvalinn liðsmaður til að taka þátt í að móta framtíðar heimaþjónustu í breyttu landslagi heilbrigðiskerfisins

Ef þú vilt hoppa á vagninn – skelltu þá inn umsókn!

Við vekjum athygli á kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Hjúkrunarfræðingar í heimaþjónustu sinna margvíslegum verkefnum á sviði hjúkrunar þar sem markmiðið er að fólk og fjölskyldur njóti betri og einstaklingsmiðaðri þjónustu til að styðja við og hámarka heilsu, vellíðan og sjálfstæði.

Reykjavíkurborg er leiðandi í samþættri heimaþjónustu og veitir þjónustu í fremstu röð. Við í Norðurmiðstöð leitum að hjúkrunarfræðingum til að ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. Starfshlutfall og vinnutími er samkomulag.

Menntunar-og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu SÖGU og RAI mælitækjum æskileg
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Ökuréttindi
  • Umsækjendur þurfa hafa náð 18 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Lilja Garðarsdóttir, í gegnum netfangið ragna.l.gardarsdottir@reykjavik.is eða síma 411-1590.

Sækja um