Þroskaþjálfi/Sérkennari/Stuðningsaðili
Viltu verða hluti af öflugu sérkennsluteymi? Leikskólinn Hraunborg leitar að starfsfólki til að sinna sérkennslu við leikskólann.
Hraunborg er þriggja deilda leikskóli í Hraunbergi 10 í Breiðholti í Reykjavík. Leikskólinn er staðsettur í jaðri Elliðaárdals og stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og opin náttúrusvæði.
Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, stærðfræði, hreyfingu, vettvangsferðir, samskipti og sköpun.
Starfað er í anda sjálfsstjórnarkenninga um Jákvæðan aga og í anda heiltækrar skólastefnu með fjölbreyttum starfsháttum og viðfangsefnum til að koma til móts við þarfir ólíkra einstaklinga.
Einkunnarorð Hraunborgar og leiðarljós í starfi eru: Leikur, læsi og lífsgleði.
Starfið er laust nú þegar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn sérkennslustjóra og deildarstjóra.
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár og fylgja henni eftir.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara, önnur uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
- Góð samskiptafærni.
- Frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Hádegismatur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Fanney Pálsdóttir í síma 411-9770 eða í gegnum tölvupóst, sigridur.fanney.palsdottir@reykjavik.is