Til baka á starfasíðu

Stuðningsfulltrúi

Grandaskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 70-75% starf út skólaárið 2025-2026

Hlutastarf Grandaskóli 107
Sækja um

Grandaskóli er staðsettur í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru 340 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 50 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru jákvæðni, ábyrgð, vellíðan, árangur. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð. 

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Um er að ræða 75% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stuðningsfulltrúi sinnir m.a. eftirfarandi verkefnum í samvinnu við stjórnendur og kennara:

  • vera kennara til aðstoðar til að mæta þörfum nemenda. 
  • að auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega og námslega.
  • stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Áhugi og hæfni til að vinna með börnum.
  • Reynsla af vinnu með börnum í grunnskóla, leikskóla, frístundastarfi eða tómstundastarfi er kostur.
  • Gott vald á íslensku.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.

Æskilegt er að umsækjendur geti skuldbundið sig út skólaárið.

Nánari upplýsingar um starfið veita aðstoðarskólastjórarnir Hjördís Bára Gestsdóttir (hjordis.bara.gestsdottir@reykjavik.is) og Ragnhildur Einarsdóttir (ragnhildur.einarsdottir@reykjavik.is) og í síma 411 7120.

Sækja um