Leikskólakennari í Sunnufold
Leikskólakennari - Leikskólinn Sunnufold
Í Sunnufold leggjum við mikið upp úr jákvæðu og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem liðsheild einkennir starfsmannahópinn okkar. Við trúum því að ánægja og vellíðan sé forsenda þess að blómstra, hvort sem það er í leik og námi barna eða í starfi fullorðinna.
Leikskólinn er fimm deilda og með tvær starfsstöðvar í Foldunum - Frosti í Frostafold og Logi í Logafold. Við njótum okkar í náttúru garðanna okkar auk þess sem við nýtum okkur það fallega umhverfi sem Grafarvogurinn býður upp á. Við erum sterkur hluti af samfélagi okkar og erum í góðu samstarfi skólana og frístundastarfið í hverfinu.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Starfsmenn leikskóla borgarinnar ertu hluti af fjölmennu teymi fagfólks í öflugu lærdómssamfélagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt áherslum leikskólans undir stjórn deildarstjóra.
Krafa er um Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélagi.
Nánari upplýsingar veitir
Melkorka Kjartansdóttir í síma 666-0850
melkorka.kjartansdottir@reykjavik.is