Til baka á starfasíðu

Þroskaþjálfi / atferlisfræðingur í Breiðholtsskóla

Breiðholtsskóli leggur áherslu á árangur fyrir alla nemendur og teymisvinnu starfsmanna. Við erum fjölmenningarlegt samfélag og leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í öflugri skólaþróun í samheldnum starfsmannahópi.

Fullt starf Breiðholtsskóli - Sérkennsla þroskaþj. 109
Sækja um

Breiðholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur í hjarta Breiðholtshverfis í Reykjavík við Arnarbakka 1-3. Skólinn er með vel búnum kennslustofum, útisundlaug, stórt íþróttahús, snilliver, danssal og fallegum hátíðarsal.

Við skólann er lögð áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Við sem hér störfum erum stolt af skólanum okkar sem státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna. Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á skapandi og skemmtilegt skólastarf, læsi, félagsfærni og sjálfseflingu.

Lögð er áhersla á samvinnu starfsmanna þar sem allir taka virkan þátt í þróun skólastarfsins í anda Aðalnámskrár, Menntastefnu Reykjavíkurborgar og leiðsagnarnáms.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að annast þjálfun nemenda sem þurfa sértækan stuðning í samráði við skólastjórnendur.
  • Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
  • Að þróa framsækið skólastarf í takti við stefnu skólans.
  • Að vinna í teymi með öðru starfsfólki.

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi til að starfa sem þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur
  • Reynsla og þekking á sérkennslu og stuðningi í grunnskóla æskileg.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi.
  • Lipurð í samskiptum og jákvæðni.
  • Góð tölvu- og tæknikunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanumSelf-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi í starfi

  • Menningarkort og bókasafnskort.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort.
  • Heilsuræktarstyrkur.

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Laun samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/Félags grunnskólakennara.

Starfshlutfall 100%

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir skólastjóri í síma 4117450 og í tölvupósti asta.bjarney.eliasdottir@reykjavik.is

Sækja um