Sérkennari í námsveri í Breiðholtsskóla
Breiðholtsskóli leggur áherslu á árangur fyrir alla nemendur og teymisvinnu starfsmanna. Við erum fjölmenningarlegt samfélag og leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í öflugri skólaþróun í samheldnum starfsmannahópi.
Breiðholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur í hjarta Breiðholtshverfis í Reykjavík við Arnarbakka 1-3. Skólinn er með vel búnum kennslustofum, útisundlaug, stórt íþróttahús, snilliver, danssal og fallegum hátíðarsal.
Við skólann er lögð áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Við sem hér störfum erum stolt af skólanum okkar sem státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna. Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á skapandi og skemmtilegt skólastarf, læsi, félagsfærni og sjálfseflingu.
Lögð er áhersla á samvinnu starfsmanna þar sem allir taka virkan þátt í þróun skólastarfsins í anda Aðalnámskrár, Menntastefnu Reykjavíkurborgar og leiðsagnarnáms.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Að annast sérkennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur.
• Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
• Að þróa framsækið skólastarf í takti við stefnu skólans.
• Að vinna í teymi með öðru starfsfólki.
Hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Reynsla og þekking á sérkennslu.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi.
• Lipurð í samskiptum og jákvæðni.
• Góð tölvu- og tæknikunnátta.
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Hlunnindi í starfi
· Menningarkort og bókasafnskort.
· Samgöngustyrkur.
· Sundkort.
· Heilsuræktarstyrkur.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir skólastjóri í síma 4117450 og í tölvupósti asta.bjarney.eliasdottir@reykjavik.is