Til baka á starfasíðu

Stærðfræðikennari óskast næsta skólaár, frá hausti 2026

Við auglýsum eftir stærðfræðikennara á unglingastig sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í teymi með jákvæðum og metnaðarfullum kennurum.

Fullt starf Árbæjarskóli 110
Sækja um

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Sérmenntun í stærðfræði æskileg
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Erna Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri í tölvupósti gudrun.erna.thorhallsdottir@reykjavik.is

eða Guðlaug Sturlaugsdóttir í tölvupósti gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is

Sækja um