Til baka á starfasíðu

Enskukennari í Árbæjarskóla frá hausti 2026

Enskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla næsta skólaár, haustið 2026. 

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi.

Fullt starf Árbæjarskóli 110
Sækja um

Enskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla næsta skólaár, haustið 2026. Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru 112 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Enskukennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi. Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.

Sérmenntun í ensku er æskileg.

Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.

Hæfni í samskiptum.

Faglegur metnaður.

Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.

MJÖG góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Sturlaugsdóttir í síma- 411-7700 og í tölvupósti gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is

Sækja um