Til baka á starfasíðu

Stærðfræðikennari á unglingastigi - Foldaskóli - skólaárið 2026 - 2027

Laus er til umsóknar staða stærðfræði kennara á unglingastigi í Foldaskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á kennslu og þróun skólastarfs.  

Fullt starf Foldaskóli 112
Sækja um

Foldaskóli er heildstæður grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru tæplega 500 en ásamt því að vera hverfisskóli nemenda í 1.-10. bekk í Foldahverfi er hann safnskóli á unglingastigi fyrir Hamra- og Húsahverfi. Við skólann er starfrækt Foldaver, sérdeild fyrir einhverfa.

Leiðsagnarnám og skapandi lærdómssamfélag einkenna skólann ásamt sterkri umhverfisvitund og heilsueflingu en skólinn tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og fylgir grænum skrefum Reykjavíkurborgar. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann er í nálægt við Grafarvoginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi.

Einkunnarorð skólans eru: siðprýði – menntun – sálarheill

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda á unglingastigi í samráði við skólastjórnendur.
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans og tekur þátt í teymi með öðru starfsfólki.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri.
  • Lipurð í samskiptum og faglegur metnaður.
  • Góð tölvu- og tæknikunnátta.
  • Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.

Starfshlutfall 100%

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía María Gunnarsdóttir í tölvupósti Olafia.maria.gunnarsdottir@reykjavik.is

 

Sækja um