Umsjónarkennari í teymi 7.-8. bekkja (raungreinar, stærðfræði og náttúrufræði) fyrir næsta skólaár
Umsjónarkennari í teymi kennara í 7. og 8. bekk, með áherslu á raungreinar.
Löng starfslýsing
Nemendahópur Álftamýrarskóla er fjölbreyttur og þarfir nemenda margvíslegar. Álftamýrarskóli er fjölmenningarlegur skóli þar sem rúmlega 30% nemenda eru af erlendum uppruna, af um 30 mismunandi þjóðernum. Í aga- og samskiptamálum er stuðst við verkfæri Uppeldi til ábyrgðar og lögð er mikil áhersla á leiðsagnarnám. Í læsiskennslu er unnið út frá aðferðum Byrjendalæsis og Pals. Álftamýrarskóli er teymiskennsluskóli og margverðlaunaður fyrir góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu nemenda í samráði við aðra kennara í teymi, skólastjórnendur og foreldra.
Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi og samráði við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
Kennsluréttindi grunnskólastigi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Faglegur metnaður
Brennandi áhugi á starfi með börnum
Teymiskennsluhugsun
Áhugi á fjölbreyttum kennsluaðferðum
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitafélaga
Starfshlutfall allt að 100%