Til baka á starfasíðu

Forstöðumaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafarteymi

Málaflokkur heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir leitast eftir að ráða öflugan forstöðumann til starfa yfir Vettvangs og ráðgjafateymi.

Fullt starf Vettvangs- og ráðgjafarteymi 101
Sækja um

Málaflokkur heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir leitar að framsýnum og metnaðarfullum forstöðumanni yfir Vettvangs og ráðgjafateymi. Teymið er hluti þjónustu velferðarsviðs Reykjavíkur og starfar samkvæmt stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir.

Vettvangs- og ráðgjafateymið (VoR) er þverfaglegt hreyfanlegt teymi sem uppfyllir skilyrði ICM (Intensive Case Management). 

VoR teymið hefur yfirsýn yfir stöðu heimilislausra með miklar þjónustuþarfir og veitir stuðning með því að sinna gestum sem koma í neyðarskýli í samstarfi við ráðgjafa á öllum miðstöðvum borgarinnar. Auk þess sinnir VoR vettvangsstarfi og tilfallandi verkefnum sem upp koma varðandi markhóp þjónustunnar. Í þjónustunni er tekið mið af skaðaminnkandi nálgun til að draga úr skaðlegum áhrifum jaðarsetningar. Einnig er unnið eftir batahugmyndafræði og notaðar aðferðir áhugahvetjandi samtals (Motivational Interview).

Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á starfsmannamálum, skipulagi og rekstri teymisins.
  • Taka þátt í stefnumótun, þróun og nýbreytni í þjónustu við fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
  • Samstarf við helstu hagsmunaaðila, s.s. notendur, samstarfsaðila.
  • Stjórna og taka þátt í reglulegum faglegum fundum teymisins sem og fundum með samstarfsaðilum.
  • Tryggja að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Mikil þekking og víðtæk reynsla af vinnu með jaðarsettum einstaklingum
  • Reynsla af stjórnun sambærilegrar þjónustu.
  • Reynsla og þekking á skaðaminnkandi nálgun, batahugmyndafræði og housing first.
  • Leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið

Laun er samkvæmt samningi Reykjavikurborgar og viðkomandi stéttarfélagi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir í

Sækja um