Dalskóli - Stuðningsfulltrúi
Dalskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúum til að aðstoða Dalskólabörn á grunnskólaaldri. Starfshlutfall er 40-70%.
Dalskóli er samrekinn grunn- og frístundaskóli með um 500 börnum og um 85 starfsmönnum. Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga. Dalskóli er þróunarskóli í leiðsagnarnámi.
Staðan eru laus nú þegar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
- Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra sérkennslu.
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.
- Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum.
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
- Menningarkort- bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Frekari upplýsingar um starfið veita Guðný Guðlaugsdóttir, (gudny.gudlaugsdottir@reykjavik.is) og Ásta Bárðardóttir (asta.bardardottir@reykjavik.is) deildarstjórar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.