Til baka á starfasíðu

Teymisstjóri í íbúðakjarna á Laugavegi

Við leitum að drífandi og metnaðarfullum teymisstjóra í íbúðakjarna að Laugavegi 105.

Fullt starf Íbúðakjarni Laugavegi 105 105
Sækja um

Óskað er eftir öflugum teymisstjóra til starfa í íbúðakjarna að Laugavegi 105, í hjarta Reykjavíkur. Um er að ræða krefjandi en jafnframt spennandi verkefni.

Hlutverk teymisstjóra í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk er m.a. annars að byggja upp og þróa stuðning við fullorðið fatlað fólk á heimili sínu. Unnið er í teymum sem tekur mið af stuðningsþörf hvers og eins.

Teymisstjóri vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.

Markmiðið er að efla lífsgæði einstaklinga og styðja þá til sjálfstæðs lífs eins og að búa sér eigin heimili, nýta vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku og njóta menningar og félagslífs.

Leitast er við að einstaklingsmiða þjónustuna og aðlaga hana að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi. Teymisstjóri starfar í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, gildandi lög og reglugerðir í málefnum fatlaðs fólks og félagsþjónustu og önnur viðeigandi lög.

Verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð, umsjón með að starfsmenn vinni eftir þeim markmiðum sem sett eru með þjónustunni og leiðsögn til starfsfólks.
  • Auka lífsgæði og sjálfstæði þjónustunotenda, efla færni á öllum sviðum, stuðla að jákvæðum samskiptum og jákvæðri sjálfsmynd.
  • Stýrir teymum þjónustunotenda og ber ábyrgð á útdeilingu verkefna.
  • Þátttaka í þróunar- og umbótavinnu varðandi faglegt starf.
  • Samskipti við aðstandendur
  • Stuðlar að og tekur þátt í notendasamráði og þverfaglegu samstarfi, bæði innan og utan Reykjavíkurborgar.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á þjónandi leiðsögn, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta (C1 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma).
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Viðkomandi þarf að getað hafið störf sem fyrst.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Helgi Snævar Ólafsson í síma 690-1214 eða á 

helgi.snaevar.olafsson@reykjavik.is

Sækja um