Til baka á starfasíðu

Kennari í hönnun og smíði við Melaskóla

Melaskóli óskar eftir að ráða kennara í hönnun og smíði í 100% stöðu til framtíðar. 

Fullt starf Melaskóli 107
Sækja um

Melaskóli er rótgróinn grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti við aðstandendur. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.

Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.

Við skólann starfar öflugt teymi list- og verkgreinakennara þar sem lögð er áhersla á sköpunargleði og samvinnu. 

Nánari lýsingu á námi og kennslu í textílmennt má finna í aðalnámskrá grunnskólanna 

https://adalnamskra.is/adalnamskra-grunnskola/kafli-21

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi við annað starfsfólk skólans. 
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu æskileg ásamt óbilandi áhuga á að vinna með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum 
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Mjög góð íslenskukunnátta (C2)
  • Hreint sakarvottorð

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.

Nánari upplýsingar veitir Harpa Reynisdóttir skólastjóri, harpa.reynisdottir@rvkskolar.is.

Sækja um