Ráðgjafi í deild barna og fjölskyldna með áherslu á fötlunarmál
Austurmiðstöð auglýsir lausa stöðu ráðgjafa í deild barna og fjölskyldna með áherslu á fötlunarmál.
Austurmiðstöð auglýsir lausa stöðu ráðgjafa í deild barna og fjölskyldna með áherslu á fötlunarmál. Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og barnafjölskyldur. Ráðgjafi mun sinna ráðgjöf vegna barna og barnafjölskyldna - einkum vegna barna með fatlanir, þverfaglegu samstarfi innan Austurmiðstöðvar og við samstarfsaðila, s.s. leikskóla, grunnskóla, frístundastarfsemi og aðra þjónustuveitendur, og þátttöku í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, Betri borg fyrir börn.
Austurmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu í hverfi borgarinnar og þverfaglegu samstarfi í hverfi og milli hverfa. Í boði er vinna með metnaðarfullum hópi annarra fagmanna, sálfræðinga, félagsráðgjafa, kennsluráðgjafa, sérkennsluráðgjafa, talmeinafræðinga o.fl., að málefnum barna, skóla og fjölskyldna sem og þátttaka í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, Betri borg fyrir börn. Markmið verkefnisins er að efla þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs.
Fríðindi í starfi:
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ráðgjöf og þjónusta vegna barna og barnafjölskyldna með áherslu á fatlanir barna.
- Málstjórn, ábyrgð og vinnsla einstaklings- og fjölskyldumála.
- Gerð grunnmats vegna stuðningsþjónustu fyrir börn og unglinga og fjölskyldur þeirra.
- Gerð tillagna að umönnunarmati fyrir fötluð og langveik börn.
- Umsjón og yfirsýn einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.
- Ráðgjöf, fræðsla og upplýsingagjöf til notenda, samstarfsaðila og veitenda þjónustu við börn, unglinga og fjölskyldur.
- Þverfaglegt starf innan Austurmiðstöðvar, ekki síst í teymi Betri borgar fyrir börn.
- Samvinna við samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði mennta-, félags eða heilbrigðisvísinda.
- Framhaldsmenntun á sviði fötlunar er æskileg.
- Þekking og reynsla af ráðgjöf og þjónustu við börn og fjölskyldur, einkum vegna fatlaðra barna.
- Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
- Þekking og reynsla af starfi á sviði velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar eða öðru sveitarfélagi er kostur.
- Áhugi á þverfaglegu samstarfi.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvætt hugarfar, lausnamiðað viðhorf og vilji til að taka þátt í þróunarstarfi.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til 23. mars 2026. Umsóknir munu gilda í sex mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Sólrún Guðmundsdóttir deildarstjóri í síma 411-1400 eða tölvupósti hulda.solrun.gudmundsdottir@reykjavik.is