Sumarstarf í heimahjúkrun- tækifæri fyrir sjúkraliðanema/hjúkrunarfræðinema
Ertu sjúkraliðanemi eða hjúkrunarnemi? Taktu skref fram á við í sumar. Fáðu reynslu, stuðning og tækifæri til að hafa áhrif. Smelltu og kynntu þér starfið betur.
Viltu öðlast reynslu sem skiptir máli í sumar ?
Heimahjúkrun í Norðurmiðstöð leitar að sjúkraliðanemum og hjúkrunarnemum til starfa sumarið 2026. Um er að ræða vaktavinnu, dag-, kvöld- og helgarvaktir og er starfshlutfall samkomulag.
Í Norðurmiðstöð er veitt fjölbreytt þjónusta á sviði velferðar-, skóla- og frístundamála fyrir Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi. Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings og endurhæfingarteymis
Hjá Reykjavíkurborg leggjum við áherslu á faglegt bakland, góða leiðsögn og tækifæri til þess að vaxa í starfi þar sem þú ert hluti af samhentu og öflugu teymi. Starfið býður upp á tækifæri til þess að efla þína hæfni og faglega sýn í daglegu starfi.
Dagarnir eru ólíkir og innihaldsríkir þar sem þú ert á ferð um borgina. Þú kynnist fjölbreyttum hópum íbúa og upplifir hversu mikilvæg þín nærvera og þjónusta skiptir máli fyrir daglegt líf íbúa.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.
Helstu verkefni
- Starfað er eftir hugmyndafræði heimahjúkrunar og gæðastefnu velferðarsviðs
- Einstaklingsmiðuð hjúkrun heim til skjólstæðinga í samræmi við nám og verklag
- Skráning í rafræn sjúkraskrárkerfi
- Virk þátttaka í endurhæfingu og stuðningi við íbúa
- Fagleg samskipti og skráning hjúkrunar
- Þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
- Sjúkraliðanemi/Hjúkrunarnemi
- Geta unnið í teymi og góð samskiptahæfni
- Geta tileinkað sér nýja tækni og skráningu. Þekking á Sögu sjúkraskrárkerfi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Stundvísi
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta (B1 skv. evrópska tungumálarammanum)
- Hreint sakavottorð skv. lögum og reglum Reykjavíkurborgar
Við bjóðum þér
- Aðlögun og góða faglega leiðsögn
- Vinnuumhverfi þar sem þér er treyst og þú færð að vaxa
- Kraftmikið og samhent teymi
- Við leggjum okkur fram við að gera vaktaskipulag sem styður starfsemina og tekur jafnframt mið af þörfum starfsfólks eftir því sem hægt er
- Samkeppnishæf laun
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Lilja Garðarsdóttir deildastjóri, ragna.l.gardarsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-1950.