Til baka á starfasíðu

Sumar á Klambratúni - Stuðningsfulltrúi á Miklbraut

Við leitum að duglegu og hressu starfsfólki til að ganga til liðs við okkur í sumar á heimili fyrir karlmenn með geð- og vímuefnaröskun. Starfið er frábær reynsla fyrir þau sem elska að vinna með fólki og hafa áhuga á skaðaminnkun. Fjölbreytt vaktavinna og starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Fullt starf Sambýli Miklubraut 105
Sækja um

Um starfið:

Stuðningur við þjónustuþega miðast við að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði. Veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um skaðaminnkandi nálgun og þjónandi leiðsögn.

Starfið er tilvalið fyrir þau sem hafa gaman af því að vinna skemmtilegt og fjölbreytt starf þar sem styrkleikar starfsfólks fá að skína. 

Vinnutími er fjölbreyttur og æskilegt er að starfsfólk geti unnið allar tegundir vakta, þ.e. dag, kvöld, helgar og næturvaktir. Starfshlutfall er samkomulagsatriði en fyrst og fremst er leitað að starfsfólki sem getur unnið fullt starf.

Verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir þjónustuáætlunum og vinnur samkvæmt verklagsreglum.
  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
  • Veitir íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs og heimilishald, svo sem þrif og matseld.
  • Önnur starfstengd verkefni sem stjórnendur kunna að gefa.

Hæfnikröfur:

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með fötluðu fólki með geð- og vímuefnaröskun er æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi undir leiðsögn fagfólks.
  • Hæfni til að sýna umhyggju, skilning, virðingu og þolinmæði.
  • Íslenskukunnátta (B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Umsækjendur verða að vera orðnir 18 ára.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið er hægt að fá með því að senda tölvupóst á kristjang@reykjavik.is

Sækja um