Til baka á starfasíðu

Sérkennari óskast til starfa í Árbæjarskóla

Viltu bætast í hóp öflugrar stoðþjónustu í Árbæjarskóla? Við leitum að sérkennara í stoðþjónustu skólans sem vinnur að því að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda á uppbyggilegan og faglegan hátt. 

Fullt starf Árbæjarskóli 110
Sækja um

Viltu bætast í hóp öflugrar stoðþjónustu í Árbæjarskóla? Við leitum að sérkennara í stoðþjónustu skólans sem vinnur að því að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda á uppbyggilegan og faglegan hátt. Innan stoðþjónustunnar starfa sérkennarar, þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar ýmist í bekkjaraðstæðum eða námsverum. Nú viljum við stækka þann hóp sem sinnir nemendum með sérþarfir og leitum eftir sérkennurum. Sérkennaramenntun æskileg en skoðum einnig reynslu umsækjenda af sérkennslu./kennslu.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. 

Við ætlum að stækka þann hóp sem sinnir nemendum með sérþarfir og leitum eftir sérkennurum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast sérkennslu í samráði við deildarstjóra stoðþjónustu. 
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun, sérkennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rannveig Þorvaldsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu í tölvupósti rannveig.thorvaldsdottir@reykjavik.is

eða Guðlaug Sturlaugsdóttir í síma 4117700 og tölvupósti gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is

Sækja um