Þroskaþjálfi/leikskólasérkennari/leikskólakennari
Við á leikskólanum Funaborg óskum eftir þroskaþjálfa sem hefur áhuga á atferlisþjálfun og/eða skipulagðri kennslu.
Í leikskólanum Funaborg er lögð rík áhersla á bernskulæsi og frjálsan leik í starfi.
Í leikskólanum Funaborg trúum við að barnið sé hæfur einstaklingur sem getur, skilur, kann og vill. Í félagslegri tengingu við jafningja sína, kennara, foreldra, nærumhverfi sitt og stærra samfélagið verði barnið sterkara, hafi trú á eigin getu og öðlist kjark og þor til að leysa úr eigin vandamálum og flóknum samskiptamynstrum.
Leikskólinn Funaborg er þriggja deilda leikskóli, en á, á næstu árum að verða sjö deilda leikskóli. Leikskólinn stendur við Gullinbrú í miklum, fallegum og ævintýralegum skógarlundi.
Við vinnum nú að þróunarverkefni sem hefur yfirheitið Bernskulæsi/gríptu tækifærið
Í verkefninu „Gríptu tækifærið“ er unnið með bernskulæsi og markvisst unnið að því að skapa jákvætt viðhorf til lesturs. Ferlið leggur grunn að börn þrói með sér færni til að skilja umhverfið, miðla þekkingu, reynslu eða upplifun til annarra. Verkfæri sem nýtt eru í verkefnið eru sjónrænar vísbendingar, söngstundir, yndislestur, Lubbi finnur málbein, Gefðu 10 og markviss málörvun í litlum hópum. Markmið verkefnisins er að dýpka málumhverfi barnanna, auka ígrundun í starfi og efla sameiginlega ábyrgð starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t:
- Að bera ábyrgð á sérkennslu sem fram fer á deildinni í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra
- Skipulagning og mat á sérkennslu barnsins
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir einstaklingsnámskrá
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
- Að taka þátt í teymisvinnu barnsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Íslenskukunátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum https://rm.coe.int/CoERMPublicCommonSearchServices/DisplayDCTMContent?documentId=090000168045bb5c
- Reynsla af sérkennslu er kostur/nauðsyn
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Heimasvæði Funaborgar
Myndband um Funaborg
Starfsaðferðir í Funaborg
https://menntastefna.is/tool/myndbond-um-sjalfseflingu-fyrir-starfsfolk-leikskolanna/
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 100%
Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnes Jónsdóttir í síma 411-3920 og í tölvupósti Agnes.Jonsdottir@reykjavik.is
Leikskólinn Funaborg, Funafold 42, 112 Reykjavík