Textílkennari óskast í Brúarskóla
Brúarskóli óskar eftir textílkennara í 50% starf.
Brúarskóli er sérskóli fyrir nemendur í 3. - 10. bekk sem hafa átt erfitt með að fóta sig í almennum skóla. Skólinn er tímabundið úrræði og í starfinu er lögð áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða uppbyggingu hvers einstaklings. Meðal annars er unnið út frá áfallamiðaðri nálgun, atferlisstefnu um mótun hegðunar og út frá styrkleikum hvers og eins. Allir nemendur eru með einstaklingsbundin markmið bæði í námi og félagsfærni. Í skólanum er góður starfsandi, teymisvinna og stuðningur við nýtt starfsfólk. Við leitum að hressum og áhugasömum aðila sem er tilbúinn til að sinna skemmtilegu og jafnframt krefjandi starfi.
Hæfniskröfur:
- Kennaramenntun með sérhæfingu á sviði textílmenntar eða annarrar listsköpunar
- Færni til að vinna í teymi að fjölbreyttum verkefnum
- Faglegur metnaður
- Skipulögð vinnubrögð
- Vera hugmyndaríkur, skapandi og sveigjanlegur
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Sjálfstæði, frumkvæði og góð þjónustulund.
- Reynsla af því að vinna með börn og unglinga í alvarlegum geð- og hegðunarvanda æskileg
- Þekking á því að takast á við erfiða hegðun æskileg
- Góð íslensku kunnátta
- Stundvísi
- Hreint sakarvottorð
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggja og annast kennslu nemenda í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vera virkur þátttakandi í teymisvinnu
- Taka þátt í samstarfi starfstöðva skólans
- Taka þátt í þróunarvinnu innan skólans
- Vera nemendum góð og jákvæð fyrirmynd dags daglega
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarsambandi Íslands
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson, skólastjóri, olafur.bjornsson@reykjavik.is