Vogaskóli - stuðningsfulltrúi í sérdeild
Vogaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í sérdeild fyrir einhverfa nemendur.
Vogaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 75% - 80% starf. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn til þess að starfa í sérdeild fyrir einhverfa. Meðal annarra verkefna er að fylgja nemendum í búningsklefa karla í íþróttum og sundi.
Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 400 nemendur og um 90 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar er einnig sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
- Aðstoða nemendur í félagslegum samskiptum.
- Aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt námskrá undir leiðsögn kennara.
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Stundvísi.
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
Frekari upplýsingar um starfið
Starfið er laust frá 18. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sameykis og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Hafdís Gísladóttir, deidarstjóri sérdeildar helga.hafdis.gisladottir@reykjavik.is og Snædís Valsdóttir, skólastjóri, snaedis.valsdottir@reykjavik.is sími: 411-7373 Vogaskóli við Skeiðarvog, 104 Reykjavík