Málþing: Hágæða grænar samgöngur til KEF
Góðar og umhverfisvænar samgöngur milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins er gríðarlega mikilvægt verkefni fyrir framtíðina. Á opnum fundi lykilhagaðila ræðum við sameiginlega framtíðarsýn, raunhæfni og mögulegar lausnir á þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Við fáum innblástur frá öðrum borgum í Evrópu sem hafa ráðist í tilsvarandi verkefni sem læra má af og tökum púlsinn á þeim möguleikum sem bjóðast hjá aðilum sem vinna um allan heim að stórum innviðaverkefnum með áherslu á vistvænni samgöngur.
Að fundinum standa Reykjavíkurborg, Innviðaráðuneytið, Kadeco, Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
** Vefsíða uppfærð: Kynningarglærur fyrirlesara eru aðgengilegar neðar á síðu undir dagskrá.
Staður og stund
Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6 í Kópavogi. Fimmtudaginn 12. október kl. 13–17
Skráning
Vinsamlega skráðu þig hér svo við getum betur undirbúið fundinn.
Upptaka
Upptaka frá fundinum.
Dagskrá
- 13:00–13:05 Velkomin | Fundarstjóri Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
- 13:05–13:20 Hágæðasamgöngur fyrir heimsborg | Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Kynningarglærur borgarstjóra.
Horfa á upptöku með erindi borgarstjóra.
- 13:20–13:35 Í átt að öflugri og kolefnishlutlausum almenningssamgöngum til Keflavíkurflugvallar | Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá Innviðaráðuneytinu
Kynningarglærur Gyðu Mjallar Ingólfsdóttur.
Horfa á upptöku á erindi Gyðu.
- 13:35–13:50 Þróunaráætlun Kadeco K64 – Keflavik Reykjavik Link KRL | Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri hjá Kadeco
Kynningarglærur Samúels Torfa Péturssonar.
Horfa á upptöku með erindi Torfa.
- 13:50–14:05 Sagan og staðan - flugrúta, fluglest og fleiri hugmyndir | Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
Kynningarglærur Lilju G. Karlsdóttur.
Horfa á erindi Lilju.
- 14:05–14:35 Pallborð: Hver eru næstu skref?
Þátttakendur í pallborði:- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- Árni Freyr Stefánsson, Innviðaráðuneytið
- Samúel Torfi Pétursson, Kadeco
- Bryndís Friðriksdóttir, Vegagerðin.
Umræðustjóri: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur
Horfa á upptöku af pallborðsumræðum.
- 14:35–14:50 Hlé
Dagskrá eftir hlé mun fara fram á ensku
- 14:50–15:10 Val á samgöngulausnum - flugvallartengingar og reynslusögur | Thomas Potter, technical expert, Norconsult heldur erindi á ensku
Kynningarglærur Thomas Potter
Horfa á upptöku með erindi.
- 15:10–15:25 Grænni og snjallari samgöngur um allan heim | Carl Åge Björgan, framkvæmdastjóri Alstom í Noregi og Íslandi heldur erindi á ensku
Kynningarglærur Carl Åge Björgan
Horfa á upptöku með erindi.
Video í lok kynningar Carl.
- 15:25–15:45 Tengingin milli Helsinki og Vantaa flugvallarins | Henry Westlin, borgarverkfræðingur Vantaa heldur erindi á ensku
Horfa á upptöku með erindi.
- 15:45–16:10 Pallborð: Hvernig gæti framtíðin litið út?
Þátttakendur í pallborði:- Thomas Potter, Norconsult
- Carl Åge Björgan, Alstom og
- Pawel Bartoszek, formaður svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins.
Stjórnandi: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur.
Horfa á upptöku með pallborðsumræðum.
Seinni pallborðsumræður fara fram á ensku.
- 16:10–16:15 Lokaorð
- 16:15–17:00 Tengslamyndun og léttar veitingar
Yfirlit yfir kynningarfundi
Var þetta ekki fundurinn sem þú varst að leita að? Við höfum safnað saman yfirliti yfir kynningarfundi og streymi.