Velferðarráð - Fundur nr. 525

Velferðarráð

Ár 2026, miðvikudagur 4. febrúar var haldinn 525. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Kjartan Magnússon og Magnús Davíð Norðdahl. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Bára Sigurjónsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 22. janúar 2026, þar sem tilkynnt er að samþykkt hafi verið á fundi borgarstjórnar þann 20. janúar 2026 að Kjartan Magnússon taki sæti sem aðalfulltrúi í velferðarráði í stað Helga Áss Grétarssonar. MSS22060049.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál, dags. 7. janúar 2026. VEL26010152.

    -    Kl. 13:03 taka Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Ellen Jacqueline Calmon og Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum. 

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á áskorunum í lífi ungmenna og tillögum um breytingar á þjónustu Reykjavíkurborgar við ungmenni. VEL26010157.

    Indriði Nökkvi Þóreyjarson og Theodóra Líf Aradóttir, fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna, og Ása Kristín Einarsdóttir, verkefnastjóri á fagskrifstofu frístundar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir þakka fyrir kynninguna og áherslupunktana sem ungmennin nefndu. Mikilvægt er að leitað sé eftir röddum barna í málum er tengjast þeim, má þar nefna samgöngur, húsnæðismál, frístundir og margt fleira. Tilefni er til þess að skoða hvort ekki sé hægt að tryggja aðkomu ungmenna að fleiri ráðum og nefndum borgarinnar.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn þakkar fulltrúum Reykjavíkurráðs ungmenna kærlega fyrir kynninguna og góða brýningu. Mikilvægt er að tryggja að raddir barna og ungmenna fái að hljóma í borgarkerfinu og að þau hafi raunverulega aðkomu að ákvörðunartöku borgarinnar. Framsókn ítrekar mikilvægi þess að borgin verði barnvænt sveitarfélag og taki öll kerfi borgarinnar í endurskoðun með hagsmuni barna að leiðarljósi. Tillaga þess efnis liggur sofandi í nefnd. Senda þarf fleiri mál til umsagnar Reykjavíkurráðs ungmenna og veita viðunandi tíma til svars frá ráðinu. Einnig þarf að greiða ungmennum fyrir nefndarsetu í ráðinu eins og gert er í öðrum ráðum og tengja borgarfulltrúa beint við Reykjavíkurráð ungmenna með því að skipa tengiliði barna í borgarstjórn. Reykjavíkurráð ungmenna er hvatt áfram til góðra verka.

  4. Fram fer kynning á störfum umboðsmanns barna. VEL26010132.

    Salvör Nordal, umboðsmaður barna, Elísa Ragnheiður Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Þyrí Halla Steingrímsdóttir, skrifstofustjóri Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkar velferðarráðs þakka góða kynningu á embætti umboðsmanns barna sem er að vinna mikilvægt starf. Embættið er að kalla í auknum mæli eftir frumkvæði frá börnum til að hafa áhrif og beitir sér einnig fyrir því að staðið sé að fleiri rannsóknum í samvinnu við háskólasamfélagið um réttindi barna auk fjölda annarra verkefna sem eru mikilsverð. Umboðsmaður hefur bent á að innleiða þurfi 3. grein Barnasáttmálans með formlegum hætti í starfsemi allra sveitarfélaga þar sem allar ákvarðanir skulu teknar með það að leiðarljósi að þær séu barninu fyrir bestu.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn þakkar umboðsmanni barna fyrir upplýsandi kynningu á starfi umboðsmanns. Tekið er undir með umboðsmanni um mikilvægi þess að taka ákvarðanir með hagsmuni barna að leiðarljósi. Innleiða þarf hagsmunamat barna við allar ákvarðanir sem borgin tekur. Einnig er tekið undir mikilvægi þess að borgin sé með aðgengileg gögn um stöðu og þjónustu barna svo sem fjölda barna á biðlista eftir þjónustu. Fulltrúinn ítrekar mikilvægi þess að setja börn í aukinn forgang í okkar samfélagi og  þörf þeirra á þjónustu sé mætt strax.  Huga þarf þá sérstaklega að þeim börnum sem sækja ekki grunnskóla eða flosna upp úr framhaldsskóla.

  5. Lagt fram minnisblað framkvæmdastjórnar Barnaverndar Reykjavíkur, dags. 25. nóvember 2025, um aukningu stöðugilda á skrifstofu Barnaverndar Reykjavíkur. VEL26010154.

    Elísa Ragnheiður Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og  Þyrí Halla Steingrímsdóttir, skrifstofustjóri Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að tryggja fjármagn til barnaverndar í þeim fjárhagsáætlunum sem gerðar eru. Barnaverndin er ein af mikilvægustu einingunum innan borgarinnar sem styður við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu. Líkt og sést í minnisblaðinu þá hefur álag á starfsmenn aukist vegna fjölgunar tilkynninga og vaxandi málaþunga og er raunar ítrekað langt umfram æskileg viðmið samkvæmt mælingum á álagi og málafjölda í málavoginni.  Einnig verður að horfa til þess að íbúum í Reykjavík hefur fjölgað síðustu fimm ár. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að samþykktar verði þær tillögur og óskir sem framkvæmdastjórn Barnaverndar Reykjavíkur leggur fram um aukningu í stöðugildum þannig að aukið álag og fjölgun tilkynninga bitni ekki á fagmennsku og þjónustu sem börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu eiga rétt á.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður fjölgun stöðugilda í Barnavernd Reykjavíkur. Barnavernd þjónustar viðkvæmasta hóp okkar samfélags og má aldrei vera undirmönnuð. Það er þó gerð athugasemd við það að stöðugildin hafi ekki verið aukin í síðustu fjárhagsáætlun sem gerð var í desember. Sérstaklega í ljósi þess að erindi Barnaverndar um þörf á fjölgun stöðugilda barst í nóvember. Það hefði farið betur á því að tryggja fjármagnið í fjárhagsáætlun þessa árs. Fjölgun barna í Reykjavík og aukinn þungi mála kallar á fjölgun stöðugilda í barnavernd.

    Fylgigögn

  6. Tillaga sviðsstjóra um rekstur neyðarheimilis Barnaverndar Reykjavíkur. VEL26010155.
    Frestað.

    Elísa Ragnheiður Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og  Þyrí Halla Steingrímsdóttir, skrifstofustjóri Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Fram fer kynning á skýrslu nefndar um heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins (upptökuheimili barna) 1974-1979. VEL26010133.

    Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari, Elísa Ragnheiður Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Þyrí Halla Steingrímsdóttir, skrifstofustjóri Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  8. Umsögn velferðarráðs um skýrslu nefndar um heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins (upptökuheimili barna) 1974-1979. MSS26010078. 
    Frestað.

  9. Tillögur stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna. MSS25020124. 
    Frestað.

    -    Kl. 15:30 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum og Þorvaldur Daníelsson tekur sæti á fundinum.

  10. Lagt fram minnisblað, dags. 2. febrúar 2026, um tillögur að betri nýtingu á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar. MSS25040003.

    Inga Borg, teymisstjóri á skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga velferðarráðs um mat á kostnaði og ábata af innleiðingu Solihull aðferðarinnar í þjónustu velferðarsviðs, sbr. 10. lið fundargerðar velferðarráðs frá 14. janúar 2026. VEL26010073.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um að styrkumsókn Memmm Play verði tekin á dagskrá velferðarráðs, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs frá 30. apríl 2025. VEL25050003.

    -    Magnús Davíð Norðdahl víkur af fundinum við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram málsmeðferðartillögu um að tillögunni verði vísað frá. Málsmeðferðartillagan er felld með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands.

    Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins. 

  13. Velferðarráð leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að velferðarráð feli sviðsstjóra velferðarsviðs að leita leiða til að fjármagna starfsemi Bjarkarhlíðar um 6 milljónir króna, eða sem nemur hálfu stöðugildi, til að mæta auknu álagi í þjónustu og lengri biðtíma eftir viðtölum.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26020027.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um stuðning við verkefnið bók fyrir börn fanga, sbr. 11. lið fundargerðar velferðarráðs frá 5. nóvember 2025. VEL25110014.
    Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. 

    Fylgigögn

  15. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.

  16. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um hvernig eftirliti með fósturforeldrum og öðrum úrræðum sem vista börn í lengri eða skemmri tíma er háttað í dag. VEL260020028.
     

  17. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um hvort að börn hafi verið vistuð af Barnavernd Reykjavíkurborgar í Bakkakoti á Suðurlandi. Hafi það verið gert er óskað eftir upplýsingum um hvernig eftirliti með vistun barna í Bakkakoti var háttað.

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. VEL26020030.

    Fylgigögn

  18. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um meðalfjölda fjarvistarstunda barna í grunnskólum borgarinnar. Upplýsingarnar óskast sundurliðaðar eftir skólum og skólastigum, þ.e. yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvernig brugðist er við fjarvistum barna úr skóla, þar á meðal hvaða verklag er viðhaft gagnvart foreldrum og eftir atvikum barnaverndaryfirvöldum.

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. VEL26020029.

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 19. janúar 2026, um flutning framleiðslueldhúss velferðarsviðs innan Vitatorgs, sem samþykkt var með breytingartillögu fulltrúa Framsóknarflokksins á fundi velferðarráðs 21. janúar 2026 og færð í trúnaðarbók:

    Lagt er til að framleiðslueldhús á Vitatorgi verði flutt í matsal á sömu hæð og eldhúsið er í dag og matsalurinn verði færður á næstu hæð fyrir ofan. Velferðarsvið mun sjá um alla aðra þætti matarþjónustunnar aðra en að elda matinn á meðan á framkvæmdum stendur. Gerðir verða samningar við þriðja aðila um framleiðslu á mat til heimsendingar og í móttökueldhús þjónustuíbúða og félagsmiðstöðva þangað til framkvæmdum á Vitatorgi lýkur og starfsemi eldhússins hefst að nýju.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26010035.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Við texta tillögunnar bætist: Samhliða verði mat lagt á hvort hægt sé að auka afkastagetu í hádegismat í Bólstaðarhlíð og Aflagranda til að geta boðið upp á mat án fyrirfram pöntunar á þeim stöðum á framkvæmdartíma Vitatorgs. Mat þess efnis verði lagt fyrir velferðarráð í síðasta lagi í mars 2026.

    Breytingartillagan var samþykkt.
    Tillagan var samþykkt svo breytt.
    Vísað til borgarráðs.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands lögðu fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkar velferðarráðs taka undir nauðsyn þess að grípa til aðgerða vegna stöðu framleiðslueldhúss velferðarsviðs á Vitatorgi, með hliðsjón af niðurstöðum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og þeim kröfum sem gerðar eru til matvælaöryggis þegar þjónusta er veitt viðkvæmum hópum. Ljóst er að tryggja þarf örugga og samfellda matarþjónustu til íbúa þjónustuíbúða, íbúa sem þurfa að fá heimsendan mat og gesta félagsmiðstöðva. Mikilvægt er að gæði þjónustunnar skerðist ekki og boðið verði upp á góða matarþjónustu, bæði á framkvæmdatímanum og eins eftir að framkvæmdum er lokið. Samstarfsflokkarnir undirstrika mikilvægi þess að íbúar og aðrir notendur þjónustunnar fái skýrar upplýsingar um breytingarnar og að tekið sé tillit til félagslegra þátta, svo sem samveru íbúa og aðgengis að heitum máltíðum, eftir því sem unnt er á meðan á framkvæmdum stendur og eftir að framkvæmdum lýkur. Einnig er lögð áhersla á að framvinda hönnunar, kostnaðaráætlunar og framkvæmdar verði kynnt reglulega fyrir velferðarráði, þannig að tryggt sé gagnsæi og ábyrg eftirfylgni verkefnisins.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 17:11

Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Magnús Davíð Norðdahl

Ellen Jacqueline Calmon Þorvaldur Daníelsson

Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 04.02.2026 - Prentvæn útgáfa