Velferðarráð - Fundur nr. 436

Velferðarráð

Ár 2022, miðvikudagur 5. október var haldinn 436. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:07 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Heiða Björg Hilmisdóttir, Helga Þórðardóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Sandra Hlíf Ocares, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þorvaldur Daníelsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Aðalbjörg Traustadóttir, Agnes Sif Andrésdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Kristjana Gunnarsdóttir, Þórhildur Guðrún Egilsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1.  Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL22050007.

  2. Lögð fram til kynningar drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2023. Trúnaðarmál. VEL22090292.

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, um hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar til framfærslu hækki sem hér segir:

    -    Grunnfjárhæð fyrir einstakling sem rekur eigið heimili hækkar úr 217.799 kr. í 228.471 kr. á mánuði
    -    Grunnfjárhæð til hjóna/sambúðarfólks hækkar úr 348.476 kr. í 365.551 kr. á mánuði.
    -    Grunnfjárhæð til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði hækkar úr 183.507 kr. í 192.499 kr. á mánuði.
    -    Grunnfjárhæð til þeirra sem búa í foreldrahúsum hækkar úr 108.898 kr. í 114.234 kr. á mánuði.
    -    Fjárhæð vegna barna í 16 gr. a hækki úr 17.481 kr. í 18.338 kr. á mánuði.

    Fjárhæðir fjárhagsaðstoðar verða hækkaðar um 4,9% í samræmi við verðlagsforsendur Reykjavíkurborgar. Breyting þessi taki gildi frá og með 1. janúar 2023. 

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22090234.

    Frestað.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 26. september 2022, með bókun mannréttinda- og ofbeldisvarnaráðs um stöðu heimilislausra kvenna í Reykjavík, sbr. 3. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnaráðs frá 22. september 2022. MSS22090134.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir taka undir bókun mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs og fela velferðarsviði að kanna möguleika þess að finna annað og hentugra húsnæði undir starfsemi Konukots. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins styður heilshugar þessa bókun mannréttinda og ofbeldisvarnarráðs. Fulltrúi Flokks fólksins var á þessum fundi mannréttindaráðs þar sem borgarfulltrúar fengu kynningu á Konukoti. Húsnæðið er löngu sprungið og það hentan engan veginn fyrir þá starfsemi sem þar fer fram. Allir borgarfulltrúar voru sammála um að það verði fundið hentugra húsnæði undir starfsemi Konukots sem fyrst.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á drögum að þarfagreiningu fyrir nýtt neyðarhúsnæði fyrir heimilislausar konur. Trúnaðarmál. VEL22090293.

  6. Fram fer kynning á stöðunni í gistiskýlum velferðarsviðs. VEL22090290.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Aukið álag er á neyðarskýli Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa, stór hluti þeirra sem leita í neyðarskýlin eru í þörf fyrir langtímaúrræði innan heilbrigðiskerfisins. Mikilvægt er  að bregðast við aukinni þjónustuþörf með því að fjölga gistirýmum auk þess sem að  ríkið  bregðist við og standi undir þeirri lagaskyldu sem á því hvílir og komi á fót hjúkrunarrými fyrir þann hluta hópsins sem glímir við mikinn heilsubrest. Ótækt er að ekkert heilbrigðisúrræði standi þeim hópi til boða. Um þriðjungur þeirra sem þangað leita koma úr öðrum sveitarfélögum eða eru án kennitölu. Mikilvægt er að skerpa á samtali við önnur sveitarfélög og við ríkið um þátttöku í kostnaði því við viljum að sjálfsögðu ekki vísa nokkrum frá í neyð. 

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, um stofnun neyðarhúsnæðis fyrir heimilislausa karlmenn í miðborginni, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki að verja alls 155 m.kr. til reksturs neyðarhúsnæðis í miðborginni fyrir heimilislausa karla sem dvalið hafa í langan tíma í neyðarskýlum borgarinnar. Kostnaður rúmast ekki innan fjárheimilda sviðsins.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22070032.

    Frestað.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, um viðbótarfjármagn vegna samnings um rekstur Konukots, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að samningsupphæð við Rótina um rekstur neyðarskýlis fyrir húsnæðislausar konur verði aukin um 8,5 m.kr. á ári frá núgildandi samningi til að hægt verði að mæta starfsmati sem leiddi til launahækkana. Óskað er eftir að breytingin taki gildi frá og með 28. apríl 2022 eða frá þeim tíma er starfsmatið á starfi við þjónustu heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir var samþykkt. Aukinn kostnaður á árinu 2022 yrði 5,7 m.kr. en 8,5 m.kr. á ári eftir það. Kostnaður rúmast ekki innan fjárheimilda velferðarsviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22090271.

    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, um hækkun tekjumarka sérstaks húsnæðisstuðnings, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að samþykktar verði eftirfarandi breytingar, afturvirkt frá 1. júní 2022, til samræmis við hækkun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á neðangreindum fjárhæðum sem fram koma í 5. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning:

    Fjöldi heimilis-manna    Neðri tekjumörk á ári    Efri tekjumörk á ári    Neðri tekjumörk á mánuði    Efri tekjumörk á mánuði
    1    4.895.292    6.119.111    407.941    509.926
    2    6.474.408    8.093.017    539.534    674.418
    3    7.579.800    9.474.752    631.650    789.563
    4 eða fleiri    8.211.456    10.264.315    684.288    855.360

    Heildaráætlun ársins 2022 fyrir sérstakan húsnæðisstuðning er 1.301 m.kr. Kostnaður vegna hækkunar tekjumarka fyrir tímabilið júní til desember 2022 er metinn á bilinu 12-15 m.kr. Útkomuspá 2022 gerir ráð fyrir að sérstakur húsnæðisstuðningur verði innan fjárheimilda.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22090235.

    Samþykkt. Vísað til borgarráðs.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins fagnar tillögu um hækkun tekjumarka sérstaks húsnæðisstuðnings. Flokkur fólksins lagði til svipaða tillögu um endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning í borgarráði 30. júní 2022. Það vekur furðu að þegar Flokkur fólksins lagði til samskonar tillögu var kostnaðurinn metinn á 24-30 m.kr. á ári og metið sem svo að auka þyrfti fjárheimildir. Umsögn velferðarsviðs barst Flokki fólksins 14. september. Það  er athyglisvert  að nú aðeins 3 vikum síðar er samskonar aðgerð meirihlutans metin innan fjárheimilda. Flokkur fólksins fagnar þessari viðhorfsbreytingu hjá meirihlutanum því batnandi mönnum er best að lifa.
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna, dags. 7. júlí 2022, um hækkun viðmiðunarfjárhæðar sérstaks húsnæðisstuðnings, sem vísað var til meðferðar velferðarráðs með bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. ágúst 2022, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 5. október 2022. MSS22070052.

    Vísað frá með sex atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Flokks fólksins gegn einu atkvæði fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir leggja til að vísa þessari tillögu frá á grundvelli þess að hún er efnislega samhljóma þeirri tillögu sem var rædd hér á undan og samþykkt að vísa áfram til borgarráðs. Áréttað er þó að mikilvægt er að koma til móts við breytingar á reglugerð nr. 1200/2016 og breyta reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning á þann veg að fjárhæð tekjumarka samkvæmt 5. gr. reglnanna verði jafnframt hækkuð um 3% líkt og reglugerðin kveður á um.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að veita lágtekjuheimilum sértæka aðstoð vegna gjalda tengdum börnum, sem vísað var til meðferðar velferðarráðs, sbr. 7. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 21. júlí 2022, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 5. október 2022. MSS22060162.

    Frestað.

    Fylgigögn

  12. Fram fer kosning í starfshóp um styrkveitingar velferðarráðs úr borgarsjóði 2023. 
    VEL22090291.

    Eftirfarandi aðilar eru tilnefndir:

    Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, Samfylkingunni.
    Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaformaður velferðarráðs, Framsókn, varafulltrúi.
    Sandra Hlíf Ocares, Sjálfstæðisflokknum.
    Dís Sigurgeirsdóttir, skrifstofustjóri.

    Samþykkt.

  13. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um starfsfólk stoð- og stuðningsþjónustu og samgöngusamning Reykjavíkurborgar, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs frá 31. ágúst 2022. VEL22090010.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram svar Félagsbústaða, dags. 5. október 2022, við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um kvartanir vegna raka/myglu í íbúðum Félagsbústaða, sbr. 8. lið fundargerðar velferðarráðs 31. ágúst 2022. VEL22090006.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Athyglisverðar upplýsingar berast í svari. Segir að árið 2021 hafi verið farið í  260 úttektir vegna myglu og raka. Í 15 tilfellum varð leigjandi að flytja út. Nú er spurning hvort þetta telst mikið eða lítið. Skoða þarf svona mál í samhengi og bera þessar tölur saman við tölur fyrri ára. Í upphafi síðasta kjörtímabils fékk fulltrúi Flokks fólksins mörg símtöl og skeyti vegna rakamála í íbúðum Félagsbústaða. Þeim kvörtunum hefur farið fækkandi sem þýðir að þjónusta og almenn viðbrögð við kvörtunum af þessum toga hefur batnað.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram svar Félagsbústaða, dags. 5. október 2022, við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um skiptingu verksviðs milli Félagsbústaða og velferðarsviðs vegna þjónustu við leigjendur Félagsbústaða, sbr. 9. lið fundargerðar velferðarráðs frá 31. ágúst 2022. VEL22090007.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um innheimtu leigu og rétt til félagslegs leiguhúsnæðis að loknu útburðarferli, sbr. 10. lið fundargerðar velferðaráðs frá 31. ágúst 2022. VEL22090008.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Almennt séð hafnar Flokkur fólksins því að skuld leigjenda sé send í innheimtu til lögfræðinga. Flokki fólksins finnst gengið of harkalega fram við skuldsett  fólk. Það leikur sér enginn að því að skulda. Ef leiga er ekki greidd á eindaga er send innheimtuviðvörun 14 dögum frá eindaga húsaleigu. Ef húsaleiga er ógreidd 28 dögum eftir eindaga fer leigukrafa í milliinnheimtu til Motus. Þar er greiðanda gefinn 7 daga frestur til þess að ganga frá greiðslu eða samkomulagi. Sé ekki brugðist við innheimtuviðvörun getur útburðarferli tekið við ásamt auknum innheimtukostnaði. Því er spurt hvort að viðkomandi eigi rétt á félagslegu leiguhúsnæði að loknu útburðarferli? Hér þarf að fara mildari leiðir. Sá sem skuldar er ekki betur settur þegar á skuldina eru komnir dráttarvextir. Útburðarmál eru andstyggileg mál. Flokkur fólksins vonar að vandað sé hvert skref í þessum málum og leigjendur fái það svigrúm sem þeir þurfa til að ýmist  koma í veg fyrir útburð eða að fá annan samastað áður en kemur til útburðar. Enginn á að búa á götunni.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um heilbrigðisþjónustu og nýtingu smáhúsa, sbr. 15. lið fundargerðar velferðarráðs frá 31. ágúst 2022. VEL22090013.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borist hefur svar við fyrirspurn Flokks fólksins um heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa og nýtingu smáhýsa á Granda.  Einnig var óskað upplýsinga um nýtingu smáhýsanna. Hafa komið tímabil sem eitt þeirra eða fleiri eru ekki í notkun? Ef svo er hversu lengi og af hvaða ástæðu? Flokkur fólksins þakkar svörin en þar segir að heilbrigðisþjónustu til þeirra einstaklinga sem leigja smáhýsi sé eins háttað og hjá öðrum íbúum höfuðborgarsvæðisins.  Heilbrigðisþjónusta er á vegum ríkisins en ekki borgarinnar. Íbúar eru margir hverjir  með miklar og flóknar þjónustuþarfir og  þeir hljóta að þurfa mikla umönnun vegna þess. Fulltrúa Flokks fólksins hefur borist ábendingar frá starfsmönnum um að þeir hafi áhyggjur af heilsufari íbúa og að þeir telji sig ekki geta veitt næga umönnun. Spurning hvort hægt væri að ráða heilbrigðismenntaðan starfsmann sem ætti auðveldara með að beina íbúum í rétta heilbrigðisþjónustu. Varðandi nýtingu virðist hún ágæt, en langan tíma tekur að standsetja húsin milli leigjenda. Hvert hús er dýrmætt og því þarf að flýta öllu slíku. 

    Fylgigögn

  18. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 5. október 2022, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um niðurstöðu stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VEL22090012.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borist hefur svar við fyrirspurn Flokks fólksins  um niðurstöðu stýrihóps um endurskoðun aðgerðaráætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Flokkur fólksins óskaði upplýsinga varðandi vinnu stýrihóps um endurskoðun aðgerðaáætlunar með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Umræddur stýrihópur starfaði á tímabilinu jan.- apríl 2022.  Nú er kominn október og fram til þessa dags hefur ekki borið á niðurstöðum þessa stýrihóps. En sjá má að á dagskrá þessa sama fundar er þarfagreining á neyðarskýlum fyrir konur. Flokkur fólksins telur núverandi húsnæði neyðarskýlis mjög óhentugt og fara þarf í að finna nýtt húsnæði hið fyrsta. Fram kemur að tvær aðgerðir eru ekki hafnar og er önnur þeirra afar mikilvæg og má  hún ekki dragast  lengur. Hún lýtur að því að kanna stöðu heimilislausra með ákominn heilaskaða og dulda fötlun.

    Fylgigögn

  19. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar verði falið að finna nýtt og stærra húsnæði fyrir starfsemi Mánabergs þar til búið verður að byggja nýtt framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina. Einnig er lagt til að núverandi húsnæði að Laugarásvegi verði selt. Með vísan til ársskýrslu Barnaverndar Reykjavíkur liggur fyrir að húsnæði Mánabergs er löngu sprungið og nýting á húsnæðinu 130%. Starfsemin er komin yfir þolmörk, auk þess sem húsnæðið er löngu komið til ára sinna. Búið er að samþykkja að byggt verði nýtt húsnæði fyrir Mánaberg og gert ráð fyrir því í 5 ára fjárhagsáætlun. Það hinsvegar breytir ekki þeirri staðreynd að núverandi húsnæði er óviðunandi og ekki hægt að búa við núverandi stöðu í 5 ár til viðbótar. Barnavernd Reykjavíkur hefur nú þegar framkvæmt þarfagreiningu fyrir nýtt húsnæði og því ekkert að vanbúnaði með að fara án tafar í leit að tímabundnu húsnæði. Starfsemi og þjónusta Barnaverndar Reykjavíkur er ein af mikilvægustu grunnþjónustum sem að sveitarfélög veita og því gríðarlega mikilvægt að Barnavernd Reykjavíkur sé tryggt húsnæði svo hægt sé að veita þessa þjónustu í samræmi við lögbundnar skyldur og að áfram sé hægt að byggja upp þá faglegu þjónustu sem veitt er á Mánabergi. 

    Frestað. VEL22100133.

  20. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki að setja sér vinnureglu er varðar fyrirspurnir til ráðsins. Lagt er til að formanni ráðsins sé heimilt að vísa frá fyrirspurn sem þar fyrirspurnir snúa að upplýsingum sem eru nú þegar aðgengilegar kjörnum fulltrúum á vefsíðu Reykjavíkurborgar og/eða auðsóttar á veraldarvefinn. Einnig er lagt til að fyrirspurnir fylgi sömu reglum og fram koma í samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Þar kemur fram að fyrirspurnir skuli að jafnaði ekki vera lengri en 200 orð. Í siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg kemur fram að kjörnir fulltrúar kynni sér málin og komi undirbúnir til starfa, jafnframt kemur fram að við förum vel með fjármuni borgarinnar og eignir hennar. Kjörnir fulltrúar hafa alla jafnan greiðan aðgang að starfsfólki borgarinnar og gögnum á þar til gerðum vefsvæðum. Upplýsingaréttur kjörinna fulltrúa getur ekki talist óheftur og mikilvægt að honum sé ekki beitt þannig að hann hafi takmarkandi áhrif á daglega stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins við íbúa líkt og fram kemur í frumvarpi sveitastjórnarlaga. Má í þessu samhengi benda á yfirlit yfir stöðu tillagna og fyrirspurna sem lagt var fram á fundi Borgarráðs 12. október 2019, https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/6_yfirlit.pdf?fbclid=IwAR3u7cWe_LQFqUOKqsqUw3mOPYljP0srHO1B8Zk1JwRktYN5jyMeGoXmYx0  

    Frestað. VEL22100134.

  21. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Íslensk ungmenni mælast með minni félags- og tilfinningagreind en ungmenni í nágrannalöndum okkar. Embætti landlæknis hefur mælt hamingju fullorðinna Íslendinga og ungmenna í nær tvo áratugi. Gögnin sýna að Íslendingar hafa aldrei mælst jafn óhamingjusamir og nú. Börn og unglingar eyddu meiri tíma með foreldrum sínum í faraldrinum en ólíkt því sem gerðist í efnahagshruninu 2008 urðu þau óhamingjusamari í heimsfaraldrinum. Þannig að þrátt fyrir aukna samveru unglinga með foreldrum sínum á covid-tímum urðu börn  óhamingjusamari vegna skorts á  umhyggju foreldra. Sennilega voru foreldrar minna til staðar fyrir börn sín í heimsfaraldrinum vegna fjarvinnu og eða viðveru í snjalltækjum. Þessi rannsókn sýnir fram á hvað samvera og gæðastundir skipta miklu máli fyrir hamingju ungmenna. Samkvæmt ársskýrslu velferðarsviðs hafa tilvísanir til stoðþjónustunnar vegna tilfinningalegs vanda aukist um 63%. Þessar upplýsingar vekja ugg og eru vísbending um að eitthvað sé að í þjóðfélaginu. Flokkur fólksins vill bregðast við þessum vanda og leggur til að velferðarsvið styðji við foreldra í uppeldishlutverkinu. Það er m.a. hægt að gera með aukningu á framboði á foreldranámskeiðum. Einnig væri hægt að gefa út bækling með góðum ráðum til foreldra um fjölgun samverustunda með börnum sínum og  takmörkun á notkun snjalltækja.

    Frestað. VEL22100135.

Fundi slitið kl. 16:38

Heiða Björg Hilmisdóttir (sign)
Sanna Magdalena Mörtudóttir (sign) Magnea Gná Jóhannsdóttir (sign)
Þorvaldur Daníelsson (sign) Helga Þórðardóttir (sign)
Magnús Davíð Norðdahl (sign) Sandra Hlíf Ocares (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
436. Fundargerð velferðarráðs frá 5. október 2022.pdf