Velferðarráð - Fundur nr. 381

Velferðarráð

Ár 2020, miðvikudagur 19. ágúst var haldinn 381. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:04 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Heiða Björg Hilmisdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Alexandra Briem, Kolbrún Baldursdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Eftirtaldir aðilar fulltrúar velferðarráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 230/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Aron Leví Beck og Egill Þór Jónsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Regína Ásvaldsdóttir, Kristjana Gunnarsdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Agnes Sif Andrésdóttir, Aðalbjörg Traustadóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.

  2. Fram fer kynning á starfi stýrihóps um félagsstarf fullorðinna.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Stýrihópnum er þakkað fyrir góða vinnu og er falið að ljúka gerð stefnunnar í samræmi við umræður á fundi velferðarráðs ásamt kostnaðarmati.

  3. Fram fer kynning á teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Lögð er fram stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála, stöðu aðgerða í velferðarþjónustu auk húsnæðis- og skuldamála í kjölfar COVID-19. Flest af því sem fram kemur í skýrslunni lýtur að aðgerðum stjórnvalda og ákveðnum samstarfsverkefnum stjórnvalda og Reykjavíkur. Fram kemur að ákveðið er að veita 600 milljónum króna til þess að auka jöfnuð í íþrótta- og tómstundastarfi barna. Styrkurinn miðast við heimili sem hafa tekjur undir 740.000 kr. á mánuði. Þessar upplýsingar leiða huga fulltrúa Flokks fólksins að frístundakortinu sem er á forræði skóla- og frístundaráðs og hefur einmitt þennan sama tilgang. Engar fréttir hafa borist frá þeim vinnuhópi sem endurskoðar reglur um frístundakortið og veltir fulltrúi Flokks fólksins hvort velferðarráð og skóla- og frístundaráð eigi ekki að eiga í meira samstarfi um frístundakortið og styrki sem hugaðir eru til að auka jöfnuð? Það sem fulltrúi Flokks fólksins myndi vilja sjá er meira um þróun verkefna sem Reykjavíkurborg stendur ein fyrir í ljósi þess að aukning hefur orðið á umsóknum um fjárhagsaðstoð til framfærslu og framfærslulán hjá Reykjavíkurborg. Í framhaldinu eru lagðar fram fyrirspurnir sem eru sendar sérstaklega: Hvernig er ástandið á vinnumarkaði borgarinnar? Hvernig hefur gengið að manna lausar stöður í Reykjavík og hvar er mesti vandinn vegna manneklu?

  4. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra um þörf á hjúkrunarrými fyrir einstaklinga með miklar og flóknar stuðningsþarfir. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Velferðarráð hefur nú heimilað velferðarsviði að ganga til samningaviðræðna við ríkið um rekstur hjúkrunarrýma fyrir heimilislausa með fjölþættan vanda en er það í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Þar kemur fram að nauðsynlegt sé að opnað verði sérhæft hjúkrunarúrræði með samþættri heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir fólk með hjúkrunarþarfir og tvígreiningar og/eða fjölþættan vanda þar sem reynslan sýnir að hefðbundin hjúkrunarheimili geti illa mætt þörfum þessa hóps. Um er að ræða hóp einstaklinga sem hafa glímt við fjölþættan vanda (langvarandi neysluvanda, gjarnan samhliða geðrænum veikindum) og hafa nýtt sér þjónustu gistiskýlisins við Lindargötu um lengri eða skemmri tíma eða önnur úrræði velferðarsviðs. Fulltrúarnir óska eftir að vera upplýst um stöðu viðræðna eftir því sem þeim vindur fram.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Ánægjulegt er að sjá þann framgang sem hugmyndir um hjúkrunarrými fyrir heimilislaust fólk hefur fengið síðustu misseri. Enn fremur er jákvætt að sjá ríkið og sveitarfélagið vinna að lausn fyrir þá einstaklinga sem hafa miklar og flóknar þjónustuþarfir. Í gegnum tíðina hafa einstaklingar með bæði félagslegan- og heilbrigðisvanda fallið milli kerfa með þeim afleiðingum að þjónustu við hæfi skorti. Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram tillögu eins og hér um ræðir um úrræði fyrir þennan hóp í borgarstjórn á hausmánuðum 2018. Þeirri tillögu var vísað frá af meirihlutanum, hins vegar er ánægjulegt að vinna sé hafin við að finna lausnir á þeim gloppum í þjónustu við þennan hóp eins og bent var á í fyrrnefndri tillögu Sjálfstæðisflokksins.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 19. ágúst, um húsnæði fyrir unga foreldra og börn þeirra (ELLA):

    Lagt er til að 10 íbúðum í félagslegu húsnæði í Norðlingaholti verði úthlutað til ungra einstæðra foreldra á aldrinum 18 – 29 ára. Húsnæðinu verður úthlutað sem áfangahúsnæði sbr. 2. gr. og 7. mgr. 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Skipaður verði starfshópur sem hefur það hlutverk að útfæra og fylgja eftir þeim tillögum sem fram koma í meðfylgjandi skýrslu starfshóps. Níu íbúðum verður úthlutað sem almennu félagslegu leiguhúsnæði til einstaklinga/hjóna 55 ára.

    Samþykkt. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna, Flokki fólksins og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hér hefur verið samþykkt að úthluta 10 íbúðum til einstæðra foreldrar á aldrinum 18-29 ára, ásamt stöðugildi ráðgjafa til að sinna ráðgjöf á sviði uppeldis, menntunar og/eða atvinnuleitar. Auk þess verður 9 íbúðum úthlutað til fólks eldri en 55 ára sem eru á biðlista eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði þar sem blönduð íbúasamsetning þykir kostur.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 19. ágúst, um rekstur Konukots:

    Lagt er til að velferðarsviði verði falið að stofna til viðræðna við Rótina (félags um konur, áföll og vímugjafa) um rekstur Konukots. Kostnaðarauka vegna rekstursins verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2021.

    Samþykkt. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans fagna því að hægt sé að tryggja áframhaldandi rekstur Konukots. Ljóst er að þjónusta við heimilislausar konur er mikilvæg velferðarþjónusta enda um gríðarlega jaðarsettan hóp að ræða. Fulltrúarnir taka undir mat sviðsstjóra að ganga ætti til samninga við Rótina, en þau samtök hafa mikla reynslu af áfallamiðaðri nálgun í stuðningi við konur sem glíma m.a. við fíknivanda, en einnig hafa þau verið leiðandi um umræðu um áhrif kyns á fíkniefnaneyslu kvenna. Breytingar á eins mikilvægri þjónustu og þeirri sem fram fer í Konukoti eru ávallt viðkvæmar og mikilægt að stuðla að samfelldri þjónustu, en í breytingum felast líka tækifæri til nýsköpunar og bættri þjónustu við þennan hóp. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að hægt er að tryggja rekstur Konukots. Tillaga sviðsstjóra er að velferðarsviði verði falið að stofna til viðræðna við Rótina (félag um konur, áföll og vímugjafa) um rekstur Konukots. Auglýst var í júní eftir áhugasömum rekstraraðilum og sendi Lausnin (fjölskyldu- og áfallamiðstöð) og Rótin inn upplýsingar. Rekstraráætlun Lausnarinnar var um 106 milljónir en Rótarinnar um 93 milljónir. Fulltrúi Flokks fólksins þekkir vel til Lausnarinnar sem leidd er af ráðgjöfum og þerapistum með mikla menntun og reynslu. Sem sálfræðingur hefur fulltrúi Flokks fólksins oft vísað á Lausnina og veit til þess að þar er veitt fagleg og góð þjónusta. Með þessu er ekki verið að segja að Rótin skarti ekki sambærilegum gæðum hvað varðar fagmennsku og hefur Rótin verið leiðandi í þessum málaflokki um langt skeið.
     
    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista telur jákvætt að stofnað sé til viðræðna við Rótina, félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, um rekstur Konukots. Varðandi neyðarskýli almennt, er mikilvægt að tryggja nægilegt fjármagn til að halda uppi neyðarathvarfi fyrir þau sem eru í þörf. Ef komi til þess að umsjónaraðilar Konukots sjái fram á þörf á auknu fjármagni vegna Konukots er mikilvægt að Reykjavíkurborg bregðist við því. Þá er einnig nauðsynlegt að bregðast við þeirri staðreynd að Konukot hefur einungis verið opið frá 17:00-10:00. Á meðan Covid-19 faraldurinn gengur yfir hefur Konukot verið opið allan sólarhringinn. Enginn á að þurfa að fara á götuna klukkan 10 á morgnanna, eða að þurfa að hafa áhyggjur af því hvað taki við þegar Covid-19 smitum fækki og við því þarf að bregðast. Hér er ekki síður mikilvægt að ítreka nauðsyn þess að stjórnvöld og þar með talið Reykjavíkurborg tryggi að öll hafi aðgengi að húsnæði sem henti þörfum þeirra.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram tillaga Flokks fólksins, sbr. 7. lið fundargerðar borgarstjórnar þann 17. desember 2019 um deilumál á milli leigjenda félagsbústaða. 
    Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæða fulltrúa Flokks fólksins og Sósíalistaflokks Íslands. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans geta ekki fallist á að það sé hlutverk velferðarsviðs að grípa með þessum hætti inn í réttindi leigjenda félagsbústaða til að njóta síns heimilis, með kvöðum um að undirgangast slíka sáttagerð án þeirra samþykkis. Ekki er hægt að setja víðtækari kvaðir á leigjendur Félagsbústaða en leigjendur almennt. Tillagan felur einnig í sér að margar íbúðir séu leigðar í sama húsi/stigagangi meðan reglan er að dreifa íbúðum til að tryggja félagslega blöndun. Ekki er efast um góðan tilgang þessarar tillögu, en því miður virðist sem hún myndi skerða réttindi leigjenda hjá Félagsbústöðum. Þó ber þess að geta að í stefnu Reykjavíkurborgar um málefni fólks með miklar og flóknar stuðningsþarfir, er gert ráð fyrir því að breytt fyrirkomulag verði notað til að leigja þeim íbúðir á vegum Félagsbústaða sem þurfa mikinn stuðning við að halda heimili til lengri tíma. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Tillögur fulltrúa Flokks fólksins um frekari bjargir sem leigjendur Félagsbústaða geta gripið til ef upp koma erfið mál milli leigjenda félagsbústaða og að stofnað verði teymi sem hægt er að kalla til utan opnunartíma hafa verið afgreiddar. Sú fyrri er felld en sú seinni er vísað til starfshóps. Tillögurnar voru lagðar fram vegna ábendinga um að skortur sé á úrræði og aðstoð við úrlausn komi upp ágreiningur milli leigjenda. Erfiðast er þegar slík mál koma upp utan opnunartíma. Í svari kemur fram að vinnureglan sé sú að íbúi hringi í lögreglu og sé um ítrekaðan vanda sé það tilkynnt til Félagsbústaða. Vandamálið er að lögregla getur oft ekki leyst mál af þessu tagi utan opnunartíma og situr fólk oft eftir í erfiðum aðstæðum sem fólk hefur engar forsendur til að leysa úr. Um hátíðir getur þetta verið sérstaklega erfitt. Stundum eru aðstæður þannig að mál þolir ekki bið og þá hafa leigjendur lent í að fá enga aðstoð nema sagt að leita til síns ráðgjafa á opnunartíma. Á opnunartíma gilda önnur lögmál. Fram kemur að innan velferðarsviðs sé starfandi teymi sem tekur á slíkum málum. Eftir sem áður er vandinn enn til staðar komi upp erfið mál utan opnunartíma, ekki síst um hátíðir.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista telur margt í þessari tillögu sem mætti skoða og vinna nánar með og vildi því ekki fella hana.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram tillaga fulltrúa Flokks fólksins, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs þann 15. janúar 2020 um teymi sem starfar utan opnunartíma.
    Samþykkt að vísa inn í stýrihóp um stefnumótum í velferðarmálum.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð samþykkir að vísa tillögunni inn í heildstæða stefnu í velferðarmálum. Nú þegar starfa nokkur teymi en sjálfsagt er að meta í heildstæðri stefnumótun hvort þörf sé á fleiri sólarhringsvöktum.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Tillögur fulltrúa Flokks fólksins um að stofnað verði teymi sem hægt er að kalla til utan opnunartíma hefur verið vísað til starfshóps og fagnar Flokkur fólksins því. Tillagan var lögð fram vegna ábendinga um erfiðleika þegar vandi kemur upp utan opnunartíma. Í svari kemur fram að vinnureglan sé sú að íbúi hringi í lögreglu og sé um ítrekaðan vanda sé það tilkynnt til Félagsbústaða. Vandamálið er að lögregla getur oft ekki leyst mál af þessu tagi utan opnunartíma og situr fólk oft eftir í erfiðum aðstæðum sem fólk hefur engar forsendur til að leysa úr. Um hátíðir getur þetta verið sérstaklega erfitt. Stundum eru aðstæður þannig að mál þolir ekki bið og þá hafa leigjendur lent í að fá enga aðstoð nema sagt að leita til síns ráðgjafa á opnunartíma. Á opnunartíma gilda önnur lögmál. Fram kemur að innan velferðarsviðs sé starfandi teymi sem tekur á slíkum málum. Eftir sem áður er vandinn enn til staðar komi upp erfið mál utan opnunartíma, ekki síst um hátíðir.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram tillaga fulltrúa Flokks fólksins, sbr. 9. lið fundargerðar velferðarráðs þann 20. maí 2020 um farsóttarhús. 
    Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sósíalistaflokks Íslands og Sjálfstæðisflokksins sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Ríkið hefur rekið farsóttarhús sem hluta af sóttvarnaraðgerðum landlæknis. 

    Fylgigögn

  10. Lögð fram tillaga fulltrúa Flokks fólksins, sbr. 17. lið fundargerðar velferðarráðs þann 24. júní um að auka gegnsæi í þjónustu þjónustumiðstöðva.
    Samþykkt að vísa inn í stýrihóp um stefnumótum í velferðarmálum.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Velferðarráð samþykkir að vísa inn í heildstæða stefnu í velferðarmálum.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Tillögunni er vísað í starfshóp og fær vonandi þar góða meðferð. Það er ánægjulegt að sjá að margt er í farvatninu sem auka myndi gegnsæi og upplýsingagjöf til foreldra um þjónustu til barna og barnafjölskyldna á vegum þjónustumiðstöðva eins og tillaga Flokks fólksins fjallar um. Mestar áhyggjur hafa snúið að upplýsingagjöf til okkar viðkvæmustu hópa, fólks með fötlun og foreldra sem og eldri borgara og öryrkja. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar ekki hvað síst að texti verður auðlesnari og uppsetning aðgengilegri en áður og þar mun koma skýrt fram hvaða þjónusta er í boði, hvaða hópum hún er ætluð, hvernig hægt sé að sækja um hana og fylgjast með umsóknarferli. Allra leiða þarf að leita til að auka aðgengi foreldra að stuðningsþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þar sem unnið verður með alla verkferla og umsóknir. Í þessu öllu má ekki gleyma að vinna með borgarbúum, þjónustuþegum enda eru þeir þeir einu sem geta sagt hvað sé að virka og hvað virkar ekki eins vel eða alls ekki. Í svari/umsögn lítur út fyrir sem með þessum aðgerðum verði komið til móts við margar þeirra tillagna sem settar eru fram af fulltrúa Flokk fólksins. 

    Fylgigögn

  11. Lögð fram tillaga fulltrúa Flokks fólksins, sbr. 19. lið fundargerðar velferðarráðs þann 24. júní 2020 um ráðningu sumarstarfsmanna. 
    Felld fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna. gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Eðli málsins samkvæmt eru sumarstarfsmenn ráðnir yfir sumartímann. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins lagði til að sumarstarfsmenn, sem eiga þess kost, fái áframhaldandi ráðningu því að COVID 19 er ekki búið og verður ekki búið fyrr en viðurkennt bóluefni kemur á markað. Einhver tími er í það. Nú liggur fyrir að allir þurfi að aðlagast því að lifa með veirunni. Hér er því ekkert um on eða off að ræða. Það sem gafst vel í upphafi COVID heldur áfram að gefast vel ef vel er haldið á spilunum. Sumt af því sem fólk varð að tileinka sér út af COVID ástandinu var af hinu góða og verður væntanlega tekið upp sem hluti af daglegu lífi. Tillagan er felld með þeim rökum að þar sem ekki var gert ráð fyrir að átakið yrði framlengt gefi fjárhagsrammi velferðarsviðs ekki svigrúm til að bjóða þessu starfsfólki áframhaldandi störf. Enda þótt ekki hafi verið gert ráð fyrir að umrætt átak verð framlengt og ekki sé til peningur hjá sviðinu mun Flokkur fólksins engu að síður halda tillögunni til haga og minna á hana við næstu fjárlagagerð. 

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista tekur undir mikilvægi þess að fjölga stöðugildum þar sem þörf er á.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram tillaga Sósíalistaflokks Íslands, sbr. 70. lið fundargerðar borgarráðs þann 2. júlí 2020 um stofnun neyðarhúsnæðis.
    Samþykkt að vísa inn í stýrihóp um stefnumótum í velferðarmálum.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Velferðarráð samþykkir að vísa tillögunni inn í heildstæða stefnu í velferðarmálum. Árið 2018 var samþykkt í borgarráði að kaupa hús með íbúðum sem mundu vera nýttar sem neyðarhúsnæði. Það var samþykkt en hentugt húsnæði ekki fundist. Því hefur í staðinn verið tekið húsnæði á leigu og tekjulágum einstaklingum hefur verið hjálpað með að greiða gjöld á gistiheimili. Það hefur reynst vel.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Húsnæðisleysi getur verið af ýmsum ástæðum og það er nauðsynlegt að stjórnvöld bregðist við til að tryggja að öll geti leitað í öruggar aðstæður þegar neyðin bankar upp á. Enginn á að þurfa að búa við heimilisleysi eða óöruggar aðstæður. Tillögu sósíalista um stofnun neyðarhúsnæðis var vísað inn í stýrihóp um mótun heildstæðrar velferðarstefnu. Það er nauðsynlegt að það séu engar gloppur í reglum borgarinnar, svo að tryggja megi öruggar húsnæðisaðstæður fyrir þau sem búa við ótryggar aðstæður eða hafa í engin hús að venda.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram svar sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 19. ágúst 2020, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins, sbr. 22. lið fundargerðar velferðarráðs þann 24. júní 2020 um þriggja mánaða uppgjör velferðarsviðs jan-mars. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins gerir sér grein fyrir að taka þarf þriggja mánaða uppgjöri með fyrirvara. Það væri kannski gott að fá einfaldlega ítarlegri skýringar með yfirlitinu? Í svari kemur fram hjá sviðsstjóra að heimaþjónusta er ekki innan fjárheimilda vegna manneklu heldur vegna verkfalla í byrjun árs og vegna þess að ekki var hægt að ráða í þær stöður sem fjármagn var ætlað í vegna Covid. Engu að síður stendur í yfirlitinu að heimaþjónusta og heimahjúkrun voru innan fjárheimilda af tveimur ástæðum, vegna verkfalla í byrjun árs og að ekki náðist að manna í allar stöður. Mannekla kemur m.a. til vegna þess að þessi störf eru ekki talin mjög eftirsóknarverð mikið til vegna álags og lágra launa. Fulltrúi Flokks fólksins hefur oft rætt um mannekluvandann og tjáð sig um að velferðaryfirvöld nái ekki utan um þann vanda sem bitnar á þjónustuþegum. Vegna umfram fjárheimilda hjá barnavernd sem skýrast af vistgjöldum barna með fjölþættan vanda eru það sömu skýringar og oft áður. Börnum með fjölþættan vanda hefur verið að fjölga jafnt og þétt síðustu ár og telur fulltrúi Flokks fólksins að reyna mætti að gera nákvæmari áætlun fyrir barnavernd.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf frá skrifstofu borgarstjóra, dags. 13. ágúst 2020, um notkun fjarfundabúnaðar.

    Fylgigögn

  15. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu: 

    Tillaga Flokks fólksins að efla og auka tengsl velferðarþjónustunnar við eldri borgara. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður tjáð sig um að velferðarsvið treysti of mikið á ættingja og tölvukerfið þegar kemur að samskiptum við eldri borgara. Dæmi eru um að fólk „detti út úr“ tölvukerfinu og fái þess vegna ekki matinn sendan heim þótt reynt sé að hringja og láta vita. Skemmst er að minnast eldri borgara sem kom heim eftir legu á sjúkrahúsi og hreinlega gleymdist í kerfinu Hann átti aðeins malt og lýsi í ísskápnum. Lagt er til að tengslakerfi við eldri borgara sem þiggja þjónustu frá Reykjavíkurborg verði eflt og notaðar verði fjölbreyttari leiðir í því sambandi. Þegar faraldurinn skall á var sett á laggirnar verkefni sem fól í sér að hringt var til Reykvíkinga sem fá heimaþjónustu, búa einir og eru eldri en 85 ára. Verkefnið gekk vel og lagði Flokkur fólksins til í júní 2020 að verkefninu yrði framhaldið. Nú eru ámóta aðstæður skollnar á aftur og brýnt að leitað verði allra leiða til að efla og dýpka tengsl við eldri borgara sem búa heima. Lagt er til að tillögunni verði vísað í starfs- eða vinnuhóp til frekari meðferðar og að gert verði kostnaðarmat.

    Vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Tillögunni er vísað frá með tilvísun í gildandi stefnu í málefnum eldri borgara og aðgerðaáætlun sem verið er að innleiða. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins er ósáttur við að þessari tillögu var vísað frá. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar. Um var að ræða að efla og auka tengsl velferðarþjónustunnar við eldri borgara. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður tjáð sig um að velferðarsvið treysti of mikið á ættingja og tölvukerfið þegar kemur að samskiptum við eldri borgara. Dæmi eru um að fólk „detti út úr“ tölvukerfinu og fái þess vegna ekki matinn sendan heim þótt reynt sé að hringja og láta vita. Skemmst er að minnast eldri borgara sem kom heim eftir legu á sjúkrahúsi og hreinlega gleymdist í kerfinu Hann átti aðeins malt og lýsi í ísskápnum. Lagt er til að tengslakerfi við eldri borgara sem þiggja þjónustu frá Reykjavíkurborg verði eflt og notaðar verði fjölbreyttari leiðir í því sambandi. Þegar faraldurinn skall á var sett á laggirnar verkefni sem fól í sér að hringt var til Reykvíkinga sem fá heimaþjónustu, búa einir og eru eldri en 85 ára. Verkefnið gekk vel og lagði Flokkur fólksins til í júní 2020 að verkefninu yrði framhaldið. Nú eru ámóta aðstæður skollnar á aftur og brýnt að leitað verði allra leiða til að efla og dýpka tengsl við eldri borgara sem búa heima.

  16. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu: 

    Tillaga fulltrúa Flokks fólksins er varðar nýja þjónustuþætti eins og þjónustu við hár og neglur. Til þess að það geti verið raunverulegur kostur fyrir eldri borgara að vera sem lengst heima þá er mikilvægt að taka inn þjónustuþætti eins og aðstoð við hár og neglur. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að þeir eldri borgarar sem búa einir fái aðstoð, óski þeir þess, með hár og neglur og fleira ámóta sem fólk þarfnast í sínu daglega lífi. Sumir eldri borgarar eiga ekki ættingja til að sinna þessum þáttum eða hafa fjármagn til að kaupa þjónustuna sérstaklega. Enn aðrir hafa auk þess ekki þrek til að sækja sér svona þjónustu utan heimilis þar sem þeir einfaldlega treysta sér ekki út. Mannlegi þátturinn má aldrei gleymast þegar verið er að hanna og skipuleggja þjónustu fyrir eldri borgara hvort sem þeir búa heima eða í þjónustukjarna. Hafa þarf fullt samráð við þjónustuþegann og hugsa hvert skref út frá þörfum hans. Lagt er til að tillögunni verði vísað í starfs- eða vinnuhóp til frekari meðferðar og að gert verði kostnaðarmat.

    Felld með 5 atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillögunni er hafnað á grundvelli samkeppnissjónarmiða og með tilvísun í gildandi stefnu. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins er ósáttur við að þessi tillaga hefur verið felld. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar. Um var að ræða tillögu er varðar nýja þjónustuþætti eins og þjónustu við hár og neglur. Ekki er skilningur á að eldri borgarar þurfi að fá þjónustu sem þessa. Til þess að það geti verið raunverulegur kostur fyrir eldri borgara að vera sem lengst heima þá er mikilvægt að taka inn þjónustuþætti eins og aðstoð við hár og neglur. Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að þeir eldri borgarar sem búa einir fái aðstoð, óski þeir þess, með hár og neglur og fleira ámóta sem fólk þarfnast í sínu daglega lífi. Sumir eldri borgarar eiga ekki ættingja til að sinna þessum þáttum eða hafa fjármagn til að kaupa þjónustuna sérstaklega. Enn aðrir hafa auk þess ekki þrek til að sækja sér svona þjónustu utan heimilis þar sem þeir einfaldlega treysta sér ekki út. Mannlegi þátturinn má aldrei gleymast þegar verið er að hanna og skipuleggja þjónustu fyrir eldri borgara hvort sem þeir búa heima eða í þjónustukjarna. Hafa þarf fullt samráð við þjónustuþegann og hugsa hvert skref út frá þörfum hans.

  17. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillögur Flokks fólksins um breytingar á verklagsreglum og framkvæmdaferil Vitatorgs varðandi matarsendingar til eldri borgara í heimahúsi. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til eftirfarandi breytingar er lúta að framleiðslu matarins, umbúðum og tímasetningu afhendingar hans: Að maturinn sé sendur út sama dag og hann er framleiddur. Það gerir matinn girnilegri til neyslu og hjálpar þjónustuþegum að viðhalda eðlilegri matarlyst. Að umbúðum verði breytt til að auðvelda þjónustuþegum að opna þær. Eins og umbúðir eru nú er erfitt að rífa plastið af bakkanum. Lagt er til að skoðað verði að nota lok í stað þess að líma plast yfir matarílátið. Lagt er til að maturinn komi ávallt á sama tíma eða því sem næst, með að hámarki 30 mín. skekkjumörkum. Fram hefur komið hjá fólki að tímasetningar séu ekki nægjanlega nákvæmar hjá Reykjavíkurborg. Því nákvæmari sem tímasetning er því auðveldara eiga þjónustuþegar með að undirbúa móttöku hans. Það skiptir marga eldri borgara máli að hlutir séu í föstum skorðum til að þeir geti sjálfir haldið rútínu. Það er á ábyrgð velferðarsviðs að ofangreindir þættir komist hið fyrsta í betra horf og leggur fulltrúi Flokks fólksins til að tillögunum verði vísað í starfshóp til frekari úrvinnslu og að gert verði á þeim kostnaðarmat.

    Vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Vísað frá á grundvelli þess að verklagsreglur og framkvæmdaferill eru settar af starfsmönnum velferðarsviðs en ekki í velferðarráði og með vísan í samþykkta stefnumörkun og aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara og matarstefnu. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins er ósáttur við að þessari tillögu var vísað frá. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um breytingar á verklagsreglum og framkvæmdaferil Vitatorgs varðandi matarsendingar til eldri borgara í heimahúsi. Velferðarráð virðist ekki hafa skilning á að það þurfi að laga þessa hluti. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til eftirfarandi breytingar er lúta að framleiðslu matarins, umbúðum og tímasetningu afhendingar hans: Að maturinn sé sendur út sama dag og hann er framleiddur. Það gerir matinn girnilegri til neyslu og hjálpar þjónustuþegum að viðhalda eðlilegri matarlyst að umbúðum verði breytt til að auðvelda þjónustuþegum að opna þær. Eins og umbúðir eru nú er erfitt að rífa plastið af bakkanum. Lagt er til að skoðað verði að nota lok í stað þess að líma plast yfir matarílátið. Lagt er til að maturinn komi ávallt á sama tíma eða því sem næst, með að hámarki 30 mín. skekkjumörkum. Fram hefur komið hjá fólki að tímasetningar séu ekki nægjanlega nákvæmar hjá Reykjavíkurborg. Því nákvæmari sem tímasetning er því auðveldara eiga þjónustuþegar með að undirbúa móttöku hans. Það skiptir marga eldri borgara máli að hlutir séu í föstum skorðum til að þeir geti sjálfir haldið rútínu.

  18. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu ásamt greinargerð:

    Tillögur Flokks fólksins er lúta sérstaklega að verklagsreglum sendils við afhendingu matar til eldri borgara. Taka þarf tillit til margra þátta þegar reglur um verklag þjónustu við eldri borgara sem búa heima eru hannaðar. Staða eldri borgara er ólík. Það eiga t.d. ekki allir ættingja sem geta hlaupið undir bagga og það búa ekki allir í íbúðum hannaðar með hliðsjón af skertri færni og/eða hreyfigetu. Lagt er til eftirfarandi verklag við afhendingu/móttöku matar: Þjónustuþegar láta þjónustumiðstöð vita ef þeir vilja ekki fá matarsendingu þann daginn eða til lengri tíma. Ef engin fyrirmæli eru um að matarsending eigi ekki að berast eða skuli afhendast með öðrum hætti á að gera ráð fyrir að þjónustuþegi opni til að taka við matnum. Dæmi um önnur fyrirmæli gætu verið að viðkomandi óskar eftir að maturinn sé settur inn fyrir hurðina og hefur þá hurðin verið tekin úr lás eða að matur sé skilin eftir fyrir utan hurð. -Ef dyrabjöllu er ekki svarað þrátt fyrir að henni hafi verið hringt nokkrum sinnum þá ætti að hringja í síma þjónustuþega. Ef ekki er svarað í síma ætti sendill að hringja í ættingja (þjónustumiðstöð) sem tekur ákvörðun um framhaldið.

    Vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Vísað frá á grundvelli þess að verklagsreglur og framkvæmdaferill eru settar af starfsmönnum velferðarsviðs en ekki í velferðarráði og með vísan í samþykkta stefnumörkun og aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara og matarstefnu. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins er ósáttur við að þessari tillögu var vísað frá. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um breytingar sem lúta að verklagsreglum sendils við afhendingu matar til eldri borgara. Taka þarf tillit til margra þátta þegar reglur um verklag þjónustu við eldri borgara sem búa heima eru hannaðar. Staða eldri borgara er ólík. Það eiga t.d. ekki allir ættingja sem geta hlaupið undir bagga og það búa ekki allir í íbúðum hannaðar með hliðsjón af skertri færni og/eða hreyfigetu. Lagt var til eftirfarandi verklag við afhendingu/móttöku matar: Þjónustuþegar láta þjónustumiðstöð vita ef þeir vilja ekki fá matarsendingu þann daginn eða til lengri tíma. Ef engin fyrirmæli eru um að matarsending eigi ekki að berast eða skuli afhendast með öðrum hætti á að gera ráð fyrir að þjónustuþegi opni til að taka við matnum. 
    Ef dyrabjöllu er ekki svarað þrátt fyrir að henni hafi verið hringt nokkrum sinnum þá ætti að hringja í síma þjónustuþega. Ef ekki er svarað í síma ætti sendill að hringja í ættingja (þjónustumiðstöð) sem tekur ákvörðun um framhaldið.

  19. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillögur er varða matseðilinn, framleiðslu matarins og næringargildi. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að matseðill eldri borgara verði endurskoðaður hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Gerðar hafa verið kannanir um marga þætti þessu tengdu en einhverjum þykir sem niðurstöður og óskir eldri borgara hafi ekki verið virtar. Lagt er til að næringardrykk sé bætt við matarsendinguna. Ef litið er yfir matseðla má sjá að all oft er maturinn kolvetnaríkur en minna er um prótein. Eldra fólk þarf á góðri næringu að halda til að geta haldið heilsu og þrótti til að það geti búið sem lengst heima hjá sér. Dæmi eru um að eldri borgarar sem búa heima hafi þurft að fara á sjúkrahús vegna næringarskorts og uppþornunar. Auk þess er lagt til að fólki sé boðið upp á eitthvað val með matinn sinn, t.d. geti valið meira eða minna grænmeti. Fulltrúi Flokks fólksins leggur auk þess til að þessi atriði verði skoðuð af næringarráðgjöfum borgarinnar og að aukin verði eftirfylgni með að farið sé eftir matarstefnu borgarinnar að öllu leyti. Lagt er til að tillögunni verði vísað í sérstakan starfs- eða vinnuhóp til frekari úrvinnslu og að gert verði á tillögunni kostnaðarmat.

    Vísað til stýrihóps um innleiðingu á matarstefnu Reykjavíkurborgar. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vísað til meðferðar stýrihóps um forgangsröðun og innleiðingu matarstefnu

  20. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga Flokks fólksins um að eldri borgarar sem búa í sínum eigin íbúðum, ekki í þjónustukjarna, geti sótt um niðurgreiðslu á þeim þáttum sem eru að jafnaði innifaldir í þjónustuíbúð. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að eldri borgarar sem búa í eigin húsnæði sem ekki er hluti af þjónustukjarna eða skilgreint sem þjónustuhúsnæði geti sótt um niðurgreiðslur á þeim þáttum sem eru innifaldir í þjónustuíbúð. Hér mætti nefna afslátt af fasteignagjöldum, rafmagni og þátttöku velferðaryfirvalda í húsgjaldi blokkarinnar sem snýr að íbúð viðkomandi. Einnig að þeir fái aðstoð eða niðurgreidda þjónustu varðandi þrif í görðum sínum, flokkun á sorpi og sorphirðu. Sumir eldri borgarar treysta sér einfaldlega ekki út úr húsi með sorpið og allra síst ef hálka er og ófærð. Fjárhagur sumra eldri borgara er þröngur. Þeir sem búa í eigin íbúðum sem ekki eru skilgreindar þjónustuíbúðir eru að mæta annars konar hindrunum en þeir sem búa í þjónustuíbúð. Má sem dæmi nefna þrengsl á baðherbergi og í eldhúsi, dyraop eru þrengri og víða eru þröskuldar. Fyrir þá sem notast við göngugrindur eða hækjur/staf getur verið erfitt um vik. Lagt er til að þessari tillögunni verði vísað í sérstakan starfs- eða vinnuhóp til frekari úrvinnslu og að gert verði kostnaðarmat.

    Felld með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Tillagan er felld með vísan í stefnu í málefnum eldri borgara og aðgerðaáætlun sem er í innleiðingu. Samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga er sveitarfélögum heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða. Er sveitarfélögum skylt að setja sér reglur um beitingu heimildarinnar og það hefur Reykjavíkurborg gert í borgarráði. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins er ósáttur við að þessi tillaga var felld. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um að eldri borgarar sem búa í sínum eigin íbúðum, ekki í þjónustukjarna, geti sótt um niðurgreiðslu á þeim þáttum sem eru að jafnaði innifaldir í þjónustuíbúð. Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að eldri borgarar sem búa í eigin húsnæði sem ekki er hluti af þjónustukjarna eða skilgreint sem þjónustuhúsnæði geti sótt um niðurgreiðslur á þeim þáttum sem eru innifaldir í þjónustuíbúð. Hér mætti nefna afslátt af fasteignagjöldum, rafmagni og þátttöku velferðaryfirvalda í húsgjaldi blokkarinnar sem snýr að íbúð viðkomandi. Einnig að þeir fái aðstoð eða niðurgreidda þjónustu varðandi þrif í görðum sínum, flokkun á sorpi og sorphirðu. Sumir eldri borgarar treysta sér einfaldlega ekki út úr húsi með sorpið og allra síst ef hálka er og ófærð.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Nú þegar er heimild til að lækka slík gjöld vegna fjárhagslegra aðstæðna, en ekki er lagaheimild til að útvíkka hana eingöngu á forsendum aldurs.

  21. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga um að eldri borgarar fái þjónustu sjúkraþjálfara tvo daga í viku í stað eins og að heimahjúkrun verði veitt í ríkari mæli en nú er í boði. Með aukinni sjúkraþjálfun fyrir eldri borgara sem búa einir heima og geta ekki farið mikið út úr húsi eru meiri líkur á að viðkomandi geti viðhaldið þrótti sínum og verið lengur heima. Með aukinni þjálfun og fjölbreyttri hreyfingu eru líkur á að losa megi um stirðnun eða í það minnsta tefja fyrir henni. Með aukinni hreyfigetu nær viðkomandi að halda líkamanum í meira jafnvægi sem eykur sjálfstraust og þor til að geta gert þá nauðsynlegustu hluti eins og að klæða sig án erfiðleika. Með aukinni hreyfingu og hreyfigetu eykst einnig matarlyst og líkamsstarfsemin helst betri. Það hefur verið sannað að það fólk sem getur hreyft sig á efri árunum líður betur andlega og líkamlega. Í ljósi þessa leggur fulltrúi Flokks fólksins til að eldri borgarar sem búa heima fái þjónustu sjúkraþjálfara tvo daga í viku í stað eins og að heimahjúkrun verði veitt í ríkari mæli en nú er í boði. Lagt er til að tilögunum verði vísað í sérstakan starfs- eða vinnuhóp til frekari úrvinnslu og að gert verði á þeim kostnaðarmat.

    Vísað til yfirstandandi samningagerðar Reykjavíkurborgar og Sjúkratrygginga Íslands. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vísað í yfirstandandi samningagerð Reykjavíkurborgar við Sjúkratryggingar Íslands til umfjöllunar og meðferðar.

  22. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga Flokks fólksins um að taka upp gjaldfrjálsar matarheimsendingar til þeirra eldri borgara sem mælast undir framfærsluviðmiði velferðarráðuneytisins. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að skoðað verði að taka upp gjaldfrjálsar heimsendingar á mat til eldri borgara sem mælast undir framfærsluviðmiði velferðarráðuneytisins. Sama gildir um þjónustu sjúkraþjálfara. Í þessu sambandi vill fulltrúi Flokks fólksins taka fram að kostnaður við sveitafélag er um 14 milljónir á skjólstæðing sem dvelur á dvalarheimili. Hægt er að helminga þann kostnað með því að hjálpa viðkomandi til að vera heima sem lengst með auknum fríðindum eins og þessum. Þá getur viðkomandi frekar borgað af eign sinni eða húsaleigu. Fyrir marga eldri borgara munar um hverja krónu. Lagt er til að tillögunni verði vísað í sérstakan starfs- eða vinnuhóp til frekari úrvinnslu og að gert verði kostnaðarmat.

    Vísað til umsagnar velferðarsviðs.

  23. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillögur Flokks fólksins um að velferðaryfirvöld taki þátt í kostnaði við öryggishnapp og að þeir sem veita eldri borgurum þjónustu í heimahúsum s.s. taka lífsmörk komi með sín eigin tæki. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að velferðaryfirvöld taki þátt í kostnaði við öryggishnapp. Öryggishnappur er þarfaþing hjá öllum þeim eldri borgurum sem búa einir. Það veitir líka aðstandendum öryggi. Þessi þjónusta er veitt af Securitas og Öryggismiðstöðinni. Hjá Öryggismiðstöðinni kostar hnappurinn í gegnum sjúkratryggingarnar um 2.520, en beint til þeirra er kostnaður um 6.440,- Það má hugsa sér að öryggishnappur sé einn af kostnaðarþáttum heimahjúkrunar. Auk þess leggur fulltrúi Flokks fólksins til að þeir sem veita eldri borgurum þjónustu í heimahúsum s.s. taka lífsmörk komi með sín eigin tæki enda hafa ekki allir eldri borgarar ráð á að kaupa slík tæki t.d. blóðþrýstingsmæli. Lagt er til að tillögunni sé vísað í starfshóp til frekari meðferðar og að gert verði kostnaðarmat.

    Felld með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Tryggingastofnun sér um niðurgreiðslu öryggishnappa. Búnaður er til staðar hjá starfsmönnum ríkisins. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins er ósáttur við að þessi tillaga var felld. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um að velferðaryfirvöld taki þátt í kostnaði við öryggishnapp og að þeir sem veita eldri borgurum þjónustu í heimahúsum s.s. taka lífsmörk komi með sín eigin tæki. Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að velferðaryfirvöld taki þátt í kostnaði við öryggishnapp. Öryggishnappur er þarfaþing hjá öllum þeim eldri borgurum sem búa einir. Það veitir líka aðstandendum öryggi. Þessi þjónusta er veitt af Securitas og Öryggismiðstöðinni. Hjá Öryggismiðstöðinni kostar hnappurinn í gegnum sjúkratryggingarnar um 2.520, en beint til þeirra er kostnaður um 6.440,- Það má hugsa sér að öryggishnappur sé einn af kostnaðarþáttum heimahjúkrunar. Auk þess leggur fulltrúi Flokks fólksins til að þeir sem veita eldri borgurum þjónustu í heimahúsum s.s. taka lífsmörk komi með sín eigin tæki enda hafa ekki allir eldri borgarar ráð á að kaupa slík tæki t.d. blóðþrýstingsmæli.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Það er mikilvægt að gæta að verkskiptingu og kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga og ríkisins og mjög varasamt að setja það fordæmi að borgin fari að fyrra bragði og óumbeðin inn á verksvið ráðuneytis og sendi þar með þau skilaboð að kostnaðarþátttaka ráðuneytisins sé óþörf, það gæti einnig sett í uppnám samskipti milli sveitarfélags og ríkis þar sem um mjög misvísandi skilaboð væri að ræða.

  24. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga Flokks fólksins um að stöðumat á skjólstæðingi sem þiggur þjónustu frá Reykjavíkurborg verði tíðari en nú er og minna verði treyst á ættingja. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að stöðumat verði gert oftar en nú er gert og ekki eingöngu þegar sótt er um þjónustuna. Einnig er lagt til að þjónustukerfi velferðarsviðs treysti minna á ættingja, séu þeir til staðar, heldur skipuleggi þjónustu við eldri borgara frá upphafi þannig að ekki eigi að setja verkefnin á herðar fjölskyldunnar eða þjónustuþegans sjálfs. Fulltrúi Flokks fólksins leggur einnig til að matið verði einfaldað þegar sótt er um á hjúkrunarheimili. Fólki er gert erfitt fyrir að komast ofarlega á lista, það þarf að krossa í öll boxin með rökstuðningi sem ekki er á færi allra að geta. Lagt er til að gengið verði í, í kjölfar matsins, að laga það sem vantar upp á af þjónustuþáttum til að viðkomandi geti verið sem lengst heima hjá sér. Enn fremur leggur fulltrúi Flokks fólksins til að iðjuþjálfi komi árlega til að meta þörf einstaklingsins og jafnvel oftar sé viðkomandi með einhver hjálpartæki. Lagt er til að tillögunni sé vísað í starfs- eða vinnuhóp til frekari meðferðar og að gert verði kostnaðarmat.

    Vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Vísað frá á grundvelli þess að, heilsu og færnimat er ekki á vegum Reykjavíkurborgar heldur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins er ósáttur við að þessari tillögu var vísað frá. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um að stöðumat á skjólstæðingi sem þiggur þjónustu frá Reykjavíkurborg verði tíðari en nú er og minna verði treyst á ættingja. Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að stöðumat yrði gert oftar en nú er gert og ekki eingöngu þegar sótt er um þjónustuna. Einnig er lagt til að þjónustukerfi velferðarsviðs treysti minna á ættingja, séu þeir til staðar, heldur skipuleggi þjónustu við eldri borgara frá upphafi þannig að ekki eigi að setja verkefnin á herðar fjölskyldunnar eða þjónustuþegans sjálfs. Fulltrúi Flokks fólksins leggur einnig til að matið verði einfaldað þegar sótt er um á hjúkrunarheimili. Fólki er gert erfitt fyrir að komast ofarlega á lista, það þarf að krossa í öll boxin með rökstuðningi sem ekki er á færi allra að geta. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Svarið við þessari tillögu er að þessi þjónusta er ekki á vegum Reykjavíkurborgar, heldur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, enginn ágreiningur er um það og óþarfi að kalla á sérstaka úrvinnslu á sviðinu til að ítreka það.

  25. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga Flokks fólksins um að velferðarsvið skipuleggi betur tímasetningar vinnu heimahjúkrunar og annarra þjónustu sem eldri borgarar fá í heimahús. Ef það á að vera raunverulegur kostur að geta búið sem lengst heima þá þarf að endurskipuleggja nokkra mikilvæga þjónustuþætti. Það eru eldri borgarar sem búa heima sem upplifa óöryggi varðandi ýmsa þjónustuþætti velferðarsviðs. Sumum aðstandendum finnst þeir vera í glímu við velferðarkerfið fyrir hönd þjónustuþegans. Enda þótt eldri borgarar séu mikið heima við þá vilja þeir eðlilega halda tímaplani og skipulagi. Fátt er meira þreytandi en að bíða eftir þjónustu. Starfsfólkið er í kapphlaupi við tímann sem fjölgar þeim tilfellum að tímasetningar raskast. Dæmi er um að þjónusta sem á að veita kannski kl. 13 er veitt kl. 15 eða seinna. Einnig eru dæmi um að verið sé að færa þjónustuna milli daga því ekki náðist að ljúka henni á tilsettum degi eða að tímar hafi riðlast yfir daginn. Lagt er til að tillögunni sé vísað í starfs- eða vinnuhóp til frekari meðferðar og að gert verði kostnaðarmat.

    Vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Vísað frá, verklagsreglur og framkvæmdaferill eru settar af starfsmönnum velferðarsviðs en ekki í velferðarráði. Þjónustumiðstöðvar hafa metnað til að halda tímaskipulag en reynist það flókið einhverra hluta vegna þá er sannarlega mikilvægt að vera í góðu samstarfi við þjónustuþega. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins er ósáttur við að þessari tillögu var vísað frá. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um að velferðarsvið skipuleggi betur tímasetningar vinnu heimahjúkrunar og annarra þjónustu sem eldri borgarar fá í heimahús. Í bókun meirihlutans segir að rökin fyrir frávísun séu m.a að þjónustumiðstöðvar hafa metnað til að halda tímaskipulagi en reynist það flókið einhverra hluta vegna þá er sannarlega mikilvægt að og vera í góðu samstarfi við þjónustuþega. Ef það á að vera raunverulegur kostur að geta búið sem lengst heima þá þarf að endurskipuleggja nokkra mikilvæga þjónustuþætti. Það eru eldri borgarar sem búa heima sem upplifa óöryggi varðandi ýmsa þjónustuþætti velferðarsviðs. Enda þótt eldri borgarar séu mikið heima við þá vilja þeir eðlilega halda tímaplani og skipulagi. Fátt er meira þreytandi en að bíða eftir þjónustu. Starfsfólkið er í kapphlaupi við tímann sem fjölgar þeim tilfellum að tímasetningar raskast. Dæmi er um að þjónusta sem á að veita kannski kl. 13 er veitt kl. 15 eða seinna.

  26. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga Flokks fólksins um að starfsfólk sem þjónustar eldri borgara fái aukið svigrúm og sveigjanleika til að sinna því. Lagt er til að allt það færa fólk sem starfar í þessum geira fái aukinn sveigjanleika og svigrúm til að sinna starfi sínu með eldri borgurum. Þau störf sem hér um ræðir eru álagsstörf og launin eru lág. Til að geta sinnt starfi sem þessu þarf að hafa ríka þjónustulund. Fulltrúi Flokks fólksins vill nefna mikilvægi þess að starfsfólki sé veitt nauðsynlegt svigrúm í starfinu til að sinna eldri borgurum með ýmislegt sem er ekki endilega í verklýsingu. Þeir sem sinna þjónustunni eru jafnvel þeir einu sem sumir eldri borgarar sjá yfir daginn. Starfsfólk þarf að geta haft svigrúm og tíma til að hjálpa með ein og önnur erindi eins og t.d. ef hringja þarf fyrir eldri borgara og panta tíma hjá lækni eða annað sambærilegt. Hér er átt við að sá sem þjónustar gangi í verkefni sem augljóslega þarf að gera fyrir þjónustuþegann. Þetta auka svigrúm myndi einnig gefa nokkrar mínútur til að spjalla aðeins saman. Lagt er til að tillögunni verði vísað í sérstakan starfshóp til frekari úrvinnslu og að gert verði kostnaðarmat.

    Frestað og vísað til umsagnar velferðarsviðs.

  27. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga Flokks fólksins um fjölgun þjónustuþátta sem flokkast undir heimilisþrif/heimilishjálp. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að verkefni þeirra sem sinna heimilisþrifum/hjálp nái til fleiri þátta sem dæmi skipti á rúmum, þvotta og sorphirðu. Eldri borgarar eiga iðulega erfitt með þegar árin færast yfir að þvo þvottinn sinn, skipta á rúmi og annast flokkun sorps og sorphirðu. Þvotturinn er þungur og að skipta á rúmi og setja í þurrkara eða hengja upp þvott krefst ákveðinnar hreyfigetu. Þessari þjónustu verður velferðarsvið að koma á laggirnar. Aðstæður eldri borgara sem búa heima eru mismunandi. Sumir eldri borgarar sem búa einir eiga ekki ættingja eða vini sem þeir geta leitað til eftir aðstoð með þætti sem þjónusta velferðarsviðs býður ekki upp á. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að velferðarsvið bjóði út tauþvott þeirra eldri borgara sem óska eftir aðstoð með þvottinn sinn og skuli hann vera gjaldfrjáls þeim sem mælast undir framfærsluviðmiði velferðarráðuneytisins. Slík þjónusta yrði þá þannig að óhreinn þvottur er sóttur og honum skilað hreinum. Annað sem er ekki nú þegar á lista heimilisþrifa verði bætt við s.s. skipti á rúmi, flokkun heimilissorps og sorphirða.

    Felld með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Tillagan er felld með vísan í að verið er að innleiða stefnu í málefnum eldri borgara og aðgerðaáætlun þar um. Þar er forgangsröðun samþykkt. Þess má geta að mörg af þessum verkefnum eru þegar innt af hendi s.s aðstoð við að skipta á rúmum, aðstoð við þvotta og sorphirðu en er það ákvarðað að grundvelli mats á hverjum tíma. Hinsvegar stendur ekki til að bjóða út tauþvott til eldri borgara sem búa í heimahúsum að þessu sinni. 

    Fulltrúi Flokks fólksin leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins er ósáttur við að þessi tillaga var felld. Hér hefði verið lag að senda tillöguna áfram og fá formlegt svar til að upplýsa megi eldri borgara um stöðu mála. Tillagan var um að fjölgun þjónustuþátta sem flokkast undir heimilisþrif/heimilishjálp. Borgarfulltrúi Flokks fólksins lagði til að verkefni þeirra sem sinna heimilisþrifum/hjálp nái til fleiri þátta, sem dæmi skipti á rúmum, þvotta og sorphirðu. Eldri borgarar eiga iðulega erfitt með þegar árin færast yfir að þvo þvottinn sinn, skipta á rúmi og annast flokkun sorps og sorphirðu. Þvotturinn er þungur og að skipta á rúmi og setja í þurrkara eða hengja upp þvott krefst ákveðinnar hreyfigetu. Þessari þjónustu verður velferðarsvið að koma á laggirnar. Aðstæður eldri borgara sem búa heima eru mismunandi. Sumir eldri borgarar sem búa einir eiga ekki ættingja eða vini sem þeir geta leitað til eftir aðstoð með þætti sem þjónusta velferðarsviðs býður ekki upp á. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að velferðarsvið bjóði út tauþvott þeirra eldri borgara sem óska eftir aðstoð með þvottinn sinn og skuli hann vera gjaldfrjáls þeim sem mælast undir framfærsluviðmiði velferðarráðuneytisins. Slík þjónusta yrði þá þannig að óhreinn þvottur er sóttur og honum skilað hreinum. Annað sem er ekki nú þegar á lista heimilisþrifa verði bætt við s.s. skipti á rúmi, flokkun heimilissorps og sorphirða.

  28. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu ásamt greinargerð:

    Tillögur Fulltrúa Flokks fólksins er lúta að verkferli aðstoðar við böðun eldri borgara. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að gerðar verði nokkrar breytingar á verkferlum sem lúta að aðstoð við böðun fólks sem þurfa aðstoð að því tagi. Flokkur fólksins leggur til að þeir sem njóta aðstoðar við böðun fái aðstoðina þrátt fyrir að áætlaður baðdagur þeirra lendi á rauðum degi. Viðhalda þarf þessari þjónustu sama hvaða dagur er. Auka þarf mannskap svo hægt sé að viðhalda þjónustunni án tillits til hvort það er virkur dagur eða rauður dagur. Lagt er einnig til að baðdögum sé fjölgað úr einum í tvo á viku hjá þeim sem þess óska. Í verklagsreglum vegna böðunar þarf jafnframt að koma enn skýrar fram að fólk sé ekki skilið eftir í baðaðstæðunum þar sem það getur slasast. Aldrei má skilja við einstakling sem er orðinn óöruggur í hreyfingum fyrr en hann er kominn á öruggan stað í íbúð sinni. Sá vandi hefur verið reifaður að aðstoðarfólk sé oft undir álagi og hafi aðeins stuttan tíma eða kannski 40 mín. til að aðstoða við böðun. Sá tími dugar alls ekki í mörgum tilfellum.

    Samþykkt að vísa inn í yfirstandandi samningagerð Reykjavíkurborgar og Sjúkratrygginga Íslands. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vísað í yfirstandandi samningagerð Reykjavíkurborgar við Sjúkratryggingar Íslands til umfjöllunar og meðferðar.

  29. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fyrirspurn um hækkun húsaleigu hjá Félagsbústöðum síðustu misserin.
    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá yfirlit yfir hækkun húsaleigu hjá Félagsbústöðum síðustu 2 ár.

    Vísað til Félagsbústaða.

  30. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fyrirspurnir um ástandið á vinnumarkaði Reykjavíkurborgar. Lögð er fram stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19. Aðallega er fjallað um tillögur að vinnu markaðsaðgerðum, stöðu langtíma atvinnulausra og stöðu aðgerða í velferðarþjónustu auk húsnæðis- og skuldamála. Flest af því sem fram kemur í skýrslunni lýtur að aðgerðum stjórnvalda og ákveðin samstarfsverkefni stjórnvalda og Reykjavíkur. Það sem fulltrúi Flokks fólksins langar að vita er hver sé þróun verkefna sem Reykjavíkurborg stendur ein fyrir? Í framhaldinu eru lagðar fram fyrirspurnir: Hvernig er ástandið á vinnumarkaði borgarinnar? Hvernig hefur gengið að manna lausar stöður í Reykjavík og hvar er mesti vandinn vegna manneklu? Óskað er eftir yfirliti fyrir síðustu mánuði.

    Vísað til velferðarsviðs.

    -    Kl. 15:42 víkur Egill Þór Jónsson af fundinum.
    -    Kl. 16:15 víkur Aron Leví Beck af fundinum.

PDF útgáfa fundargerðar
velferdarrad_1908.pdf