Velferðarráð - Fundur nr. 361

Velferðarráð

Ár 2019, mánudagur 30. september var haldinn 361. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:31 í Kerhólum, Borgartúni 12-14. Fundinn sátu: Heiða Björg Hilmisdóttir, Líf Magneudóttir, Aron Leví Beck, Alexandra Briem, Örn Þórðarson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Vigdís Hauksdóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Regína Ásvaldsdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Agnes Sif Andrésdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Þórdís Linda Guðmundsdóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2020.
    Samþykkt að vísa í bogarráð til fjárhagsáætlunargerðar.
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Sósílistaflokks Íslands og Miðflokksins sitja hjá.

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga um breytingu á gjaldskrá vegna stuðningsfjölskyldna:

    Lagt er til að gjaldskrá stuðningsfjölskyldna hækki miðað við launavísitölu.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. september 2019, um kosningu varamanns í velferðarráð.

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.