Velferðarráð - Fundur nr. 318

Velferðarráð

VELFERÐARRÁÐ

Ár 2017, fimmtudaginn 26. október var haldinn 318. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 14.10 í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness. Fundinn sátu: Ilmur Kristjánsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Sverrir Bollason, Kristín Elfa Guðnadóttir, Börkur Gunnarsson og Jórunn Pála Jónasdóttir Áheyrnarfulltrúi: Gréta Björg Eiríksdóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Agnes Sif Andrésdóttir, Kristjana Gunnarsdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson, Sigurbjörg Fjölnisdóttir og Helga Jóna Benediktsdóttir sem ritaði fundargerð 

Þetta gerðist: 

 

1.    Lögð fram tillaga og greinargerð velferðarráðs, dags. 26. október 2017, um hækkun þjálfunarstyrkja nema hjá Fjölsmiðjunni, ásamt fylgigögnum. 

-    Kl. 14.20 víkur Elín Oddný Sigurðardóttir af fundi.

Samþykkt að vísa tillögunni til borgarráðs.

Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

Velferðarráð samþykkir að vísa tillögu um hækkun þjálfunarstyrkja nema í Fjölsmiðjunni til borgarráðs. Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk sem sinnir mikilvægu hlutverki fyrir ungt fólk á krossgötum. Áhersla er á að efla hæfni á vinnumarkaði, styrkja félagslega færni og þroska námsgetu á forsendum hvers og eins. Á árinu 2016 fóru 54% nema í vinnu eða nám að lokinni veru sinni í Fjölsmiðjunni.

-    Kl.14.35 tekur Elín Oddný Sigurðardóttir sæti á fundinum.

2.    Fram fer kynning á stuðningsþjónustu í Miðgarði. 

-    Kl. 15.00 víkur Jórunn Pála Jónasdóttir af fundi.

Margrét Magnúsdóttir, deildarstjóri í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundi slitið kl. 15.12

Ilmur Kristjánsdóttir (sign)

Elín Oddný Sigurðardóttir (sign)    Heiða Björg Hilmisdóttir (sign)

Sverrir Bollason (sign)    Kristín Elfa Guðnadóttir (sign)

Börkur Gunnarsson (sign)